140. löggjafarþing — 114. fundur,  6. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[20:02]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Hér höldum við áfram að ræða frumvarp til laga um veiðigjöld eða veiðiskatt, ég veit ekki hvort er. Ég hef ekki fengið botn í það hvort verið er að tala um skatt eða gjöld, og svo virðist vera að meiri hluti atvinnuveganefndar viti það ekki heldur eða réttara sagt höfundar þessa frumvarps, vegna þess að í því er stokkið fram og til baka á milli hugtakanna, en virðulegi forseti, það er stór munur á þessu tvennu.

Það er ljóst að ríkisstjórnin er komin í mikla andstöðu við landsmenn alla. Nú er ekki lengur hægt að kenna stjórnarandstöðunni um slælega framgöngu í þinginu og segja að stjórnin eigi í stríði við stjórnarandstöðuna því að nú er ríkisstjórnin, hin svokallaða vinstri stjórn velferðar, ekki bara komin með landsbyggðina á móti sér heldur líka meira og minna alla sveitarstjórnarmenn, alla þá er vinna í fiskvinnslu og við veiðar og svo að sjálfsögðu þá aðila á höfuðborgarsvæðinu sem vita hversu miklu máli það skiptir að við höfum hér enn þá öflugan sjávarútveg. Það er tær snilld hjá ríkisstjórninni að ná þjóðinni á móti sér einmitt í þessu máli því að það hefur verið áhugamál hjá hæstv. forsætisráðherra að tala þessa grein niður og má segja líka hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem kemur úr landsbyggðarkjördæmi og miklu sjávarútvegskjördæmi. Það hefur lengi vel verið stefnumál Samfylkingarinnar að tala niður sjávarútveginn og finna honum allt til foráttu. Ýmis ljót orð hafa verið höfð um þá sem starfa í þessari grein sem ekki er hægt að fara með hér úr ræðustól en ég vísa í orð hæstv. forsætisráðherra frá því í síðustu viku þegar hún kom hér og steytti hnefann og kallaði fólk öllum illum nöfnum.

Enginn reiknaði með að það tæki svo skamman tíma fyrir ríkisstjórnina að fá alla þessa aðila líka á móti sér en þetta lýsir kannski best ástandinu á ríkisstjórninni og öðru hér í landinu enda hefur ekkert þokast í átt til endurreisnar eða fjárfestinga í atvinnulífinu eða annars. Meira að segja skattstofnarnir eru hrundir hjá ríkisstjórninni. Hæstv. fyrrverandi fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon fór af stað með 170 skattalagabreytingar og það hefur nú komið í ljós að það að hræra upp í virðisaukaskattskerfinu hefur kostað ríkissjóð 40 milljarða í tekjum síðastliðin tvö ár. Svar þess efnis fékk ég frá fjármálaráðuneytinu í fyrradag en svo virðist vera að fjölmiðlar hafi ekki áhuga á þeim staðreyndum eða kannski er verið að hlífa þessari verklausu ríkisstjórn. Nú eru komnar breytingartillögur fram um að ríkið taki inn 15 milljarða með þessu veiðigjaldi núna, verði frumvarpið að lögum. En það er náttúrlega ekkert upp í þá 40 milljarða sem eru búnir að tapast úr innlenda virðisaukaskattskerfinu sem ég var að benda á. Það eru náttúrlega bara smámunir að taka 15 milljarða af útgerðinni miðað við það 40 milljarða gat sem eftir stendur, eftir að hæstv. þáverandi fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon réðst svo eftirminnilega á virðisaukaskattskerfið.

Hann gerði þrjár tilraunir til þess á sínum tíma. Fyrst átti að hækka matarskattinn upp í 24,5%. Við framsóknarmenn stóðum alfarið á móti því og hann varð að bakka með það. Síðan var gerð önnur atlaga að virðisaukaskattskerfinu þegar hann lagði til að matarskatturinn færi upp í 14%. Við framsóknarmenn mótmæltum því harðlega þannig að hann varð að bakka með það, en á endanum náði hæstv. þáverandi fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon því í gegn að hækka hærra þrep virðisaukaskattsins upp í 25,5% og útkoman er þessi:

Árið 2009 voru tekjur ríkissjóðs af innlendum virðisaukaskatti, þ.e. þeim virðisaukaskatti sem tekinn er í gegnum ríkisskattstjóra, 32 milljarðar. Árið 2010 var sá skattur kominn niður í 18 milljarða og í fyrra, 2011, var virðisaukaskatturinn kominn niður í mínus 9 milljarða, sem á ekki að vera hægt í virðisaukandi kerfi. Eins og orðið segir til um á að verða virðisauki á hverju stigi þar sem vara fer í gegnum hendur fleiri aðila. Samtals gerir þetta 40 milljarða tekjutap fyrir ríkissjóð á tveimur árum og munar nú um minna, virðulegi forseti. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sá sér ekki annað fært en að gera athugasemdir við þetta á sínum tíma í einni af skýrslum sínum en einhvern veginn var því ekki komið til skila að þannig væri staðan. Það hefur verið mjög erfitt að fá þessar upplýsingar hjá fjármálaráðuneytinu, það eru margar vikur síðan ég lagði inn fyrirspurn um þróun virðisaukaskattsins og ég hef kallað eftir svarinu mjög oft hér í þinginu. Það endaði með því að ég þurfti að skrifa harðort bréf til forseta þingsins um að hann mundi beita sér fyrir því að fjármálaráðuneytið svaraði spurningum mínum. Svörin birtust loksins í gær.

Mig langar að minnast á það, frú forseti, að hefði þingið haldið starfsáætlun og lokið störfum síðastliðinn fimmtudag hefði svarið aldrei borist. Ég vil meina að þarna hafi verið reynt að sitja á svarinu þangað til Alþingi væri sent heim í sumarfrí til að milda áhrifin af upplýsingunum ef þær kæmu fram og kæmust í umræðu í þinginu.

Ég byrjaði á því að ræða að skattar og gjöld eru ekki sami hlutur, en í þessu frumvarpi er ýmist notuð hugtökin skattheimta eða gjaldtaka. Mig langar til að grípa niður í umsögn Ragnars Árnasonar, prófessors í fiskihagfræði við hagfræðideild Háskóla Íslands, sem hann sendi við málið. Í fyrstu athugasemd hans við málið segir, með leyfi forseta:

„Því er haldið fram í greinargerð (athugasemdum) og í fylgiskjali að með þessum gjöldum sé verið að skattleggja svokallaða auðlindarentu í sjávarútvegi. Það er hins vegar fjarri lagi. Bæði er að höfundar frumvarpsins (fylgiskjals) virðast hafa afskaplega takmarkaðan skilning á því hvað auðlindarenta er og raunar renta yfirleitt og mistúlka þau fræði í grundvallaratriðum og hitt að skattur sá sem gerð er tillaga um er alls ekki til þess fallinn að leggjast á auðlindarentu sérstaklega. Skatturinn er í rauninni einfaldlega framleiðslugjald (eða veltuskattur).“

Svo bendir þessi ágæti prófessor á að mikið efni sé til um hagræna rentu og hin ýmsu rentuhugtök og vísar í rit eftir fræðimenn allt frá árinu 1776 og fram til ársins 2011.

Svo kemur fram í neðanmálsgrein, með leyfi forseta:

„Þetta grunnefni virðist ekki hafa verið athugað í vinnslu frumvarpsins. Að minnsta kosti er ekki í það vísað.“

Hér er því verið að leggja fram frumvarp um að leggja á stóraukinn skatt eða gjald, eftir því hvernig fólk lítur á það, í sjávarútvegi, sem er í raun byggt á lofti og þau grunnhugtök sem þurfa að vera eru ekki í frumvarpinu.

Til þess að útskýra enn frekar muninn á því hvað er skattur og hvað er gjald og hvernig megi nota þau prentaði ég hér út álit frá umboðsmanni Alþingis í máli nr. 4.843 frá árinu 2006 þar sem þetta er útskýrt. Ég held að ekki veiti af að upplýsa það í þinginu, að minnsta kosti fyrir meiri hlutanum, hver er munurinn á þessu tvennu. En eins og oft áður sjást stjórnarliðar ekki hér í salnum og meira að segja sá þingmaður sem átti að tala á undan mér lét ekki sjá sig. Þetta er það sem við í stjórnarandstöðunni höfum þurft að búa við í þessu máli.

Úrskurður umboðsmanns fjallaði um innheimtu Umferðarstofu á sérstöku gjaldi fyrir endurnýjun einkanúmers. Þó að þetta séu algjörlega óskyld mál fjallar úrskurðurinn um skatta og gjöld, og því ætla ég að reifa hann hér. Endurnýjun einkanúmers var byggð á reglugerð og ákvæðið fól í sér að rétturinn til einkamerkis fékkst ekki endurnýjaður að átta árum liðnum frá veitingu þess nema gegn greiðslu gjalds að sömu fjárhæð og lögum samkvæmt var greitt fyrir merkið í upphafi.

Þarna kemur í ljós að sá sem keypti einkanúmer greiddi fyrir það ákveðna upphæð upphaflega. Endurnýjunarrétturinn var síðan á þann hátt að hann þurfti að greiða aftur þetta gjald. Tökum eftir því að þetta er kallað gjald. Þessi aðili var mjög ósáttur við að gjaldið væri innheimt aftur. Umboðsmaður rakti í áliti sínu umferðarlögin og taldi ljóst að löggjafinn hefði með ákvæðinu tekið þá ákvörðun að gjald vegna einkamerkis skyldi bundið við ákveðna fasta fjárhæð án þess að sú fjárhæð væri í efnislegum tengslum við þann kostnað sem Umferðarstofa bæri vegna skráningar einkamerkja og umsýslu í því sambandi. Með hliðsjón af forsögu ákvæðisins, fjárhæð gjaldsins og það væri innheimt auk gjalds fyrir almennt skráningarmerki taldi umboðsmaður Alþingis ljóst að gjald fyrir einkamerki hefði byggst á sjónarmiðum um aukna tekjuöflun ríkissjóðs. Gjald fyrir einkamerki hefði því fremur samstöðu með sköttum en þjónustugjöldum.

Þarna kemur fram hvað er gjald og hvað ekki og hvaða einkenni skattur hefur, því að samkvæmt áliti umboðsmanns Alþingis eru gjöld þannig að þeim má einungis ráðstafa í þann kostnað sem gjaldheimtan er byggð á. Hins vegar, taki ríkið einhvern hluta af viðkomandi gjaldi og ráðstafi í eitthvað annað er orðið um skattlagningu að ræða því að þá er verið að ráðstafa þeim hluta af gjaldinu í eitthvað annað. Líka má segja að með því að endurrukka þetta gjald hafi það orðið að skattgreiðslu.

Það hafa fallið mörg álit hjá umboðsmanni Alþingis þar sem er tekið á þessu álitamáli hvað er gjald og hvað er skattur. Til að útskýra þetta enn betur langar mig til að vísa í það að eftir að þessi ríkisstjórn hækkaði útvarpsgjaldið og breytti því í nefskatt og hver einstaklingur 18 ára og eldri þarf að greiða tæpar 20 þús. kr. á ári í gjald til útvarpsins, hefur verið margbent á að þetta gjald skilar sér ekki allt til Ríkisútvarpsins þó að það heiti útvarpsgjald. Hæstv. ríkisstjórn er að taka hluta af því til að setja í aðra útgjaldaliði ríkissjóðs. Þá er búið að breyta gjaldi í skatt, og er ekki heimild fyrir því í stjórnarskránni.

Ef ég vísa aftur til álits umboðsmanns telur hann enn fremur að innheimta númeragjaldsins verði að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til lagaheimilda innheimtu skatta í 40. gr. og 1. mgr. 77. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Vísaði umboðsmaður að því leyti bæði til athugasemda við ákvæði 77. gr. stjórnarskrárinnar og skýringa dómstóla á ákvæðinu. Því var það niðurstaða í þessu máli að fyrirmæli um gjaldskyldu gjalds fyrir þessa ákveðnu þjónustu væri ekki fullnægjandi lagaheimild fyrir fyrrnefndu skilyrði reglugerðarinnar um greiðslu gjalds fyrir endurnýjun réttinda. Taldi umboðsmaður engu breyta þótt gert hefði verið ráð fyrir því í athugasemdum við ákvæði frumvarps þess sem leiddi það af sér að umrædd réttindi væru tímabundin, enda gætu slík ummæli í lögskýringargögnum engu þokað um þær kröfur sem gerðar væru til lagafyrirmæla um skattlagningu í 1. mgr. 77. gr. stjórnarskrárinnar.

Mér finnst, virðulegi forseti, að áður en lengra er haldið með þetta mál verði að útskýra vel og koma fram í lögskýringargögnum hvort um er að ræða gjöld eða skatta. Eins og ég sagði eru þessi hugtök notuð sitt á hvað í frumvarpinu og það er einmitt gagnrýnt í umsögn Ragnars Árnasonar prófessors, sem ég minntist á.

Það kemur líka fram í áliti hans að frumvarpið feli í sér mörg efnisatriði sem gangi gegn þjóðarhag og því sé ástæða að gera athugasemdir við frumvarpið. Hann kvartar líka yfir því að gefinn hafi verið mjög skammur frestur til umsagna, sem kemur ekki á óvart, ríkisstjórnin heyktist á því í allan vetur að koma fram með þessi tvö mál inn í þingið, breytingar á stjórn fiskveiða og veiðigjaldamálið. Svo var þeim dembt inn í þingið og átti bara að afgreiða þau á færibandi eins og tíðkast hjá þessari ríkisstjórn og meira að segja þeir sem gefa umsagnir við þessi tvö frumvörp kvarta yfir því í umsögnum sínum hversu skammur tími var gefinn.

Ragnar Árnason telur að nái málið óbreytt í gegn verði afleiðingarnar mjög slæmar. Hann nefnir sem dæmi að eignir í sjávarútvegsfyrirtækjum, bæði þær sem bókfærðar eru og rauneignir, komi til með að lækka í megindráttum og telur að þorri fyrirtækjanna verði á eftir með neikvæða eiginfjárstöðu. Hér hefur mikið verið rætt um að eignir lánastofnana lækki einnig verulega og hann bendir líka á það og svo kannski það sem er náttúrlega erfiðast að horfast í augu við; eignir þjóðarinnar, þær sem efla erlendar fjárfestingar og þær sem erlendir fjárfestar taka tillit til munu einnig minnka verulega. Hér er því, eins og Ragnar bendir á, í raun um þjóðhættulegt mál að ræða nái það í gegn. En hann fer líka yfir vaxtarþáttinn og að þetta dragi mjög úr þjóðarframleiðslu og vexti landsframleiðslu.

Ef ekki á að hlusta á svona varnaðarorð, frú forseti, er illa komið fyrir ríkisstjórninni. Það sem verst er er að það komu fleiri tugir umsagna fyrir atvinnuveganefnd sem hljóða allar á þessa leið. Hér í ræðum hefur komið fram að enginn umsagnaraðili sem kom fyrir atvinnuveganefnd gat goldið þessu frumvarpi jáyrði sitt og mælt með því að það yrði samþykkt.

Í þessu áliti sem ég er að fara yfir er samantekt í lokin í tíu töluliðum og mig langar til að lesa hana yfir, með leyfi frú forseta.

„Fyrirhugað veiðigjald mun:

1. Stórlega veikja íslenskan sjávarútveg og samkeppnishæfni hans á alþjóðlegum mörkuðum.“ — Það er mjög alvarlegt, af því að eins og allir vita keppir íslenskur sjávarútvegur á alþjóðlegum markaði.

„2. Draga verulega úr vexti framleiðni og hagkvæmni í sjávarútvegi.

3. Minnka vöxt þjóðarframleiðslunnar.

4. Minnka opinberar skatttekjur er fram í sækir.

5. Minnka fjármagnsstofn þjóðarinnar samstundis og þar með lánstraust hennar.

6. Gera fjölda fyrirtækja í sjávarútvegi tæknilega gjaldþrota.

7. Valda verulegri byggðaröskun.

8. Sjúga fé frá landsbyggðinni og valda þannig hnignun hennar.

9. Valda verulegum áföllum i fjármálakerfi landsmanna.

10. Rýra lánskjör þjóðarinnar erlendis og þar með möguleikana á erlendri fjármögnun.“

Frú forseti. Hér blikka öll rauð ljós. Þarf að segja meira um þetta mál fyrir þjóð sem er að reyna að ná sér á strik eftir bankahrun og þarf á öllu sínu afli að halda til að ná sjó á nýjan leik, þ.e. á sjálfstæðan hátt í stað þess að horfa til þess að Evrópusambandið bjargi öllum málum á Íslandi?

Þetta er kannski jafnvel lagt fram til að veikja svo sjávarútveginn að það verði auðveldara að semja um hann við Evrópusambandið, en ég veit nú ekki, Evrópusambandið sjálft er að endurskoða fiskveiðistefnu sína.

Það er við hæfi að ljúka ræðunni á þeim orðum sem koma í framhaldi af þessari samantekt, með leyfi forseta:

„Það er óðs manns æði að skattleggja íslenska atvinnuvegi, umfram það sem gengur og gerist erlendis. Það verður aðeins til þess að veikja þá atvinnuvegi og þar með efnahag þjóðarinnar og skatttekjur hins opinbera.

Þetta á við um sjávarútveg ekki síður en aðra atvinnuvegi. Fullyrðingar um að skattlagning á sjávarútveg hafi engin áhrif á starfsemi hans eða rekstur eru byggðar á sandi og eiga sér ekki stuðning í hagfræði.“

Hér þarf ekki að hafa fleiri orð um þetta mál og þetta verður að laga eða vísa frá.