veiðigjöld.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Höskuldi Þórhallssyni fyrir ágæta yfirferð yfir málið. Hann ræddi þetta aðallega út frá sjónarhorni sveitarfélaganna á landsbyggðinni og það veitir ekki af að undirstrika þau sjónarmið.
Það er talið að 80%, jafnvel 90% af öllum veiðiheimildum sé úti á landi og ég vil spyrja hv. þingmann hvernig stendur á því. Er það vegna þess að byggðirnar úti á landi eru nær fiskimiðunum? Er það vegna þess að hið opinbera er að stýra á einhvern hátt aflaheimildum út á land eða er þetta vegna þess að ákveðnir staðir hafa sérhæft sig í veiðum? Ég vil líka spyrja hann út í samspil þessa við flutningskerfið því að mest af þessum afla fer til útlanda og vegna þeirra þátta sem ég nefndi, þ.e. nálægð við miðin og sérhæfður mannauður, ef svo má segja.
Nú hvílir mjög mikið regluverk á útgerðinni, alveg gífurlegt regluverk. Ef maður les alla lagabálkana sem gilda um útgerð er það með ólíkindum og umfram aðrar atvinnugreinar. Með þessu frumvarpi er ekki bara verið að leggja verulegar álögur á útgerðina heldur líka hlekki. Ég vil spyrja hv. þingmann: Hvernig telur hann að þetta væri ef engir hlekkir væru á útgerðinni, ef hún starfaði bara eins og hvert annað fyrirtæki, hjólbarðaverkstæði eða verslun eða eitthvað slíkt og borgaði skatta og skyldur til ríkisins eins og önnur fyrirtæki? Hvaða áhrif hefði það á stöðu landsbyggðarinnar og það hvar útgerðin mundi lenda?