veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri Blöndal fyrir fyrirspurnina og mun reyna að gera mitt besta við að svara spurningum hans. Í fyrsta lagi vil ég segja að auðvitað er það hagkvæmnin, nálægðin við fiskimiðin sem gerir að verkum að fyrirtækin vilja vera staðsett úti á landi. Þetta eru ekki flókin vísindi vegna þess að þeir sem stunda sjávarútveg vilja að sjálfsögðu gera það á sem hagkvæmastan hátt. Til að mynda er gott til þess að hugsa að fyrirtæki eins og Grandi, sem er fyrst og fremst staðsett í Reykjavík, skuli vera að byggja upp á Vopnafirði, sem er það byggðarlag sem er hvað mest úr alfaraleið. Ég get sagt gamansögu um það að þessi ríkisstjórn komst að því að almenningssamgöngur til Vopnafjarðar væru góðar vegna þess að þangað lægju almenningssamgöngur. Rútan stoppaði reyndar uppi á fjöllum í 53 km fjarlægð. Það taldi ríkisstjórnin vera góðar samgöngur til Vopnafjarðar. Þetta var útidúr, en ég vildi benda á að þessi ríkisstjórn virðist ekki alveg vera í tengslum við það sem er að gerast hringinn í kringum landið.
Ísfélag Vestmannaeyja er einmitt á Þórshöfn þar sem atvinnuástand hefur verið með versta móti og þar hefur ekki verið byggt í háa herrans tíð. Nú, eins og kemur fram í ályktun sveitarfélagsins, stendur til að byggja í fyrsta skipti í langan tíma og það er fjölgun í leikskólanum. Það virðist eiga að skera þetta allt saman niður án þess að tryggt sé að fjármunirnir komi aftur til byggðarinnar.
Það er einmitt þetta sem ég vildi vekja athygli, það væri einfaldlega þannig að þessi fyrirtæki hefðu ákveðið út frá hagkvæmnissjónarmiðum að staðsetja sig hringinn í kringum landið, sem betur fer, virðulegi forseti.