veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Ég vil gera að umtalsefni ráðstöfun þess fjár sem ætlunin er að innheimta með því veiðigjaldi sem við ræðum, þeim veiðiskatti sem á að leggja á sjávarútveginn.
Ég vil ekki gera lítið úr þeim verkefnum sem hér liggja undir en velti fyrir mér forgangsröðuninni. Augljóslega muni draga verulega úr fjárfestingargetu íslensks sjávarútvegs við aukna skattlagningu. Talið er að uppsöfnuð fjárfestingarþörf í sjávarútvegi sé um 60 milljarðar kr. og árleg fjárfestingarþörf sé ríflega 20 milljarðar kr. Fjárfestingar í íslenskum sjávarútvegi á undanförnum þremur árum, þ.e. 2009, 2010 og 2011, eru í kringum 5 milljarðar kr. á ári og er sá samdráttur fyrst og fremst rakinn til þeirrar miklu óvissu sem greinin hefur búið við í stjórnartíð núverandi hæstv. ríkisstjórnar.
Nú er þessi skattlagning fyrirhuguð. Hún mun draga úr fjárfestingargetu sjávarútvegsins og við verðum að viðurkenna að þar er einhver mesta verðmætasköpunin í samfélagi okkar. Aukin fjárfesting í greininni er auðvitað til þess fallin að auka verðmætasköpun, fjölga verðmætum störfum, auka útflutningsverðmæti og gjaldeyrisstreymið til landsins sem er okkur svo nauðsynlegt. Með því að taka þetta fjármagn úr greininni drögum við augljóslega úr fjárfestingum í þessari arðsömu grein, þessari þjóðhagslega mikilvægu grein.
Fjárhæðina á að setja í verkefni, samkvæmt fjárfestingaráætluninni sem ríkisstjórnin hefur kynnt til sögunnar. Hún er í sjálfu sér ódýrt kosningaplagg án þess að ég vilji svo sem gera lítið úr þessum verkefnum en þau eru samt í mínum huga eins og gæluverkefni, hljóma eins og verkefni sem maður mundi horfa til ef maður ætti næga fjármuni til að gera það sem hugurinn girnist. En ekki þegar við erum að tala um að eiga fyrir nauðþurftum. Um er að ræða verkefni eins og aukið framlag í Kvikmyndasjóð upp á 1,5 milljarða, í verkefnasjóð skapandi greina upp á 750 milljónir, 600 milljónir í netríkið Ísland, sem ég veit nú ekkert hvað er, grænar fjárfestingar 150 milljónir, grænan fjárfestingarsjóð 1 milljarð, grænkun fyrirtækja 1,5 milljarða, vistvæn innkaup 600 milljónir, orkuskipti í skipum 600 milljónir, náttúruminjasafn/sýning 500 milljónir, hús íslenskra fræða 2,5 milljarðar.
Ég velti því fyrir mér, virðulegi forseti, hvort þetta sé rétt forgangsröðun fyrir fjármagn þegar við horfum upp á það á sama tíma að verið er að stytta opnunartíma heilsugæslustöðva. Við heyrðum frá þingmönnum Norðvesturkjördæmis að á Akranesi er verið að loka öldrunardeildinni og segja upp 28 starfsmönnum, aðallega konum sem margar hverjar hafa starfað þar í mörg ár. Þá kemur hæstv. ríkisstjórn fram með þetta plagg. Þetta er hin raunverulega forgangsröðun hjá ríkisstjórninni á þessum erfiðu tímum.
Ég skil ekki svona, virðulegi forseti. Ég skil ekki að draga eigi úr arðsömum og ábatasömum fjárfestingum í sjávarútvegi til að setja peningana í gæluverkefni. Maður veltir því auðvitað fyrir sér hvort hér sé ekki um að ræða dúsur eða hálfgerðar mútur til ákveðinna þjóðfélagshópa og atvinnugreina. Nú, ári fyrir kosningar, er höfðað til þessara hópa til að reyna að laða þá til fylgilags við það frumvarp sem hér liggur undir. Þetta eru ákaflega ósmekkleg vinnubrögð og ég vil gera við þau alvarlegar athugasemdir.
Ég hefði gjarnan viljað að hæstv. forsætisráðherra væri viðstödd, sá forsætisráðherra og þingmaður sem hefur stært sig af því að ætla að skapa hér hina norrænu velferð og hefur látið félags- og tryggingamál mikið til sín taka í tíð sinni sem þingmaður. Ég óska eftir því að hún verði kölluð á þennan fund vegna þess að hún þarf að svara því hvort þetta sé hin kórrétta forgangsröðun og rökstyðja hvernig svo megi vera. Það er líka ákaflega óeðlilegt að hæstv. sjávarútvegsráðherra skuli ekki sjá ástæðu til að vera hér með okkur við þessar umræður.
Virðulegi forseti. Í dag var varpað fram hugmynd um það, undir liðnum störf þingsins, af hv. þm. Ólínu Þorvarðardóttur, að hafa þyrfti þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál. Þar var hún að vitna til tillögu sem hún er með, sem er til meðferðar í atvinnuveganefnd, um að framtíðarskipan fiskveiðistjórnar ætti að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hæstv. forsætisráðherra hefur með reglubundnu millibili allt kjörtímabilið talað um það og talið sig vera að hóta okkur hinum með því að fara þyrfti í þjóðaratkvæðagreiðslu með sjávarútvegsmálin.
Ég vil líka spyrja hæstv. forsætisráðherra að því, virðulegi forseti, — hún verður að sýna okkur þá virðingu að svara hér spurningum okkar — af hverju við setjum ekki þetta frumvarp og það frumvarp sem lagt var fram um fiskveiðistjórnarkerfið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Af hverju setur hæstv. forsætisráðherra ekki þessi frumvörp í þjóðaratkvæðagreiðslu? Við hvað er hún hrædd? Eða er hún hrædd? Eða hvað er málið?
Það fólk sem talar hér með reglubundnu millibili í hótunarstíl, með hástemmdum yfirlýsingum, talar niður til fólks í atvinnulífinu á þann ósmekklega hátt sem hæstv. forsætisráðherra hefur gert, sérstaklega í þessu máli, verður að standa fyrir máli sínu. Ekki er hægt að bjóða þingheimi upp á það að ekki skuli einn einasti fulltrúi stjórnarmeirihlutans vera í salnum þegar þessi mikilvæga umræða fer fram. Svo hlær þetta fólk og setur fram hástemmdar yfirlýsingar, talar með ósmekklegum hætti um að verið sé að nota starfsmenn sjávarútvegsfyrirtækja sem lifandi mannlega skildi í baráttunni sem hér fer fram. Aðrir þingmenn úr meiri hlutanum tala um að atvinnurekendum sé skítsama um starfsfólkið sitt.
Það fólk sem talar svona þarf að koma hér og standa fyrir máli sínu, standa við stóru orðin. Ég vona að það sjái sóma sinn í því að mæta þeim hópi fólks úr sjávarútvegi sem kemur saman á Austurvelli á morgun kl. 4. Það gæti þá sagt beint við það starfsfólk úr sjávarútvegsfyrirtækjunum sem mætir að þangað sé það mætt undir oki vinnuveitenda. Þetta er óboðlegur málflutningur og spurningarnar knýjandi sem þarf að fá svör við.
Verði sú skattlagning sem ríkisstjórnin hefur lagt til að veruleika, verður reynslan svipuð og hefur verið af öðrum skattlagningaraðgerðum þessarar ríkisstjórnar. Þetta mun þegar upp verður staðið skila minna í kassann, skila minna til þjóðarbúsins en ef við létum þessa mikilvægu grunnatvinnugrein þjóðarinnar blómstra í friði.
Ef við gerðum í sátt þær breytingar á þessum málum sem þarf að gera, um innheimtu hærra veiðileyfagjalds, ef við gerðum nýtingarsamninga til ásættanlegs tíma, mundi þessi grein skila miklu meira í íslenskt þjóðarbú en gert er ráð fyrir í þeim hugmyndum sem hér eru uppi. (Forseti hringir.) Þær virðast eingöngu snúast um að menn geti sinnt gæluverkefnum sem fara fallega á blaði.