veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Árna Johnsen fyrir ræðu hans.
Það hefur fjarað undan frumvarpinu síðan það var lagt fram á Alþingi, svo ekki sé meira sagt. Enginn sá sem kom fyrir hv. atvinnuveganefnd gat mælt með framlagningu þess eða því að það yrði óbreytt að lögum. Síðast í dag gaf Seðlabanki Íslands það út að breytingar á lögum um stjórn fiskveiða muni hafa bein áhrif á arðsemi sjávarútvegsfyrirtækja, það kemur fram í skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika á Íslandi.
Síðan segir:
„Breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem nú hafa verið lagðar fram á Alþingi hafa bein áhrif á arðsemi sjávarútvegsfyrirtækja. Undanfarin missiri hefur greinin haldið að sér höndum í fjárfestingu vegna umræðu um hugsanlegar breytingar á lagaumgjörðinni, hefur það meðal annars birst í lítilli endurnýjun fiskiskipaflotans […]. Verði frumvarpið að lögum í núverandi mynd er líklegt að það hafi einhver neikvæð áhrif á fjármálafyrirtækin.“ (Forseti hringir.)
Meira að segja Seðlabanki Íslands sér sig tilneyddan að tala á móti frumvarpinu og hefur hann nú (Forseti hringir.) hingað til verið talinn fylgjandi ríkisstjórninni.