veiðigjöld.
Virðulegur forseti. Það lá ólíkt betur á hv. þingmanni þegar hann var á Grænlandi með mér og hv. þm. Ólínu Þorvarðardóttur. Það var ekki eins mikil reisn yfir ræðu hans áðan þegar hann veittist að mér og mínu fólki og sagði að ég væri komin af sjómannsfólki sem selt hefði kvóta sinn, ekki einu sinni heldur mörgum sinnum.
Ég vil bara geta þess að faðir minn var sjómaður í 40 ár, trillukarl, hann dó fyrir 15 árum, blessuð sé minning hans. Fósturfaðir minn sem ég ólst upp hjá hætti sökum heilsubrests fyrir nokkrum árum. Hann var búinn að vera á sjónum frá 14 ára aldri, í 50 ár, hann var heiðraður vestur á Súgandafirði núna á sjómannadaginn. Ég held að hv. þm. Árni Johnsen ætti að sýna sjómönnum og sjómannsfólki þann sóma að biðjast afsökunar á orðum sínum.
Ég vil spyrja hv. þingmann, af því að ég veit að hann hefur metnað til þess að verða sjávarútvegsráðherra þó að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki skipað hann til þess í gegnum tíðina þótt að hann hafi verið lengi á þingi: Mundi hv. þingmaður (Forseti hringir.) afnema strandveiðar ef hann yrði sjávarútvegsráðherra eftir næstu kosningar?