tekjur af virðisaukaskatti.
Virðulegi forseti. Ég er slegin yfir því að hér talaði hæstv. núverandi efnahags- og viðskiptaráðherra og sérstaklega í ljósi þess að hann er fyrrverandi fjármálaráðherra. Að koma hér fram og segja að það sé bara í himnalagi að virðisaukaskattskerfið sé hriplekt er náttúrlega ekki boðlegt ráðherra í ríkisstjórn.
Í svari þessu kemur fram að það vantar 40 milljarða inn í virðisaukaskattskerfið. Ég spyr ráðherrann einfaldlega að því hvað hann telji að valdi þessu tekjutapi. Þessi svör eru ekki boðleg, frú forseti, sérstaklega í ljósi þess að í svarinu kemur fram að fjármálaráðuneytið hafi áhyggjur af þessu og hafi ekki gert sérstaka greiningu eða rannsókn á þessu atriði umfram það sem er í gögnum hjá ríkisskattstjóra og fjársýslunni.
Þessi ríkisstjórn sem hefur farið fram með skattpíningu, frú forseti, og það er ekki í lagi með svör þess ráðherra sem er til andsvara fyrir ríkisstjórnina í dag (Forseti hringir.) því að svar fjármálaráðuneytisins sýnir að kerfið er hriplekt (Forseti hringir.) og að það þarf heldur betur að bæta það.