tekjur af virðisaukaskatti.
Frú forseti. Maður á auðvitað ekki að þurfa svara hlutum af því tagi að ég hafi sagt að það væri allt í lagi að virðisaukaskattskerfið væri hriplekt, (VigH: Þú varst að segja að það væri allt í lagi að …) Ég sagði ekkert af því tagi. Ég fékk hér óundirbúna fyrirspurn um skattamál, sem heyra reyndar undir fjármálaráðherra, ef hv. þm. Vigdís Hauksdóttir hefði hug á því að vita það, (VigH: Ég sagðist …) en ég tek alveg að mér að svara fyrir það, það er alveg sjálfsagt. Það skiptir að sjálfsögðu máli út frá efnahagslegum þáttum málsins hvort skattkerfið skilar sínu. Ég tel mig geta fullyrt það sem ég sagði áðan að tekjur ríkisins af virðisaukaskatti eru alveg í samræmi við væntingar og fylgja veltunni í samfélaginu.
Ég vil gjarnan fá tækifæri til að skoða undirliggjandi gögn í sambandi við breytingar á samsetningunni. Það er út af fyrir sig áhugavert viðfangsefni. Ég gat mér í fljótu bragði til um augljósar mögulegar skýringar á því hvers vegna samsetningin kynni að hafa breyst og hlekkirnir væru missverir í keðjunni núna. Það er augljóst mál að um tíma dró mjög úr innflutningi. Innlendur samkeppnisiðnaður styrkti stöðu sína (Forseti hringir.) og jók markaðshlutdeild sína. Það gæti haft í för með sér tilfærslu af því tagi sem hv. þingmaður vitnar í en ég vil gjarnan skoða það betur.