140. löggjafarþing — 116. fundur,  8. júní 2012.

störf þingsins.

[11:02]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Aðstæður hafa breyst eins og hv. síðasti ræðumaður sagði. Aðstæður hafa breyst frá þeim tíma þegar hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi ráðherra, talaði um að við færum á hraðferð inn í Evrópusambandið og taldi að þar mundum við slá öll met í því hversu hratt við fengjum aðild. En auðvitað er gott að menn átti sig á því að þeir hafi kannski lagt af stað fullir af of mikilli bjartsýni og ég tek undir það með honum að aðstæður hafi breyst þó að við drögum ólíkar ályktanir af því.

Mér finnst athyglisvert það sem kom fram í umræðunni áðan, meðal annars af hálfu hv. þm. Helga Hjörvars, að hann viðurkennir og telur það meira að segja kost að þróunin innan Evrópusambandsins muni leiða til aukins samruna, þéttara bandalags þar sem meira vald sé hjá miðstjórnarvaldinu en minna hjá þjóðríkinu. Það er mjög gott að þetta sjónarmið komi fram vegna þess að stundum er látið eins og Íslendingar geti bara valið af matseðli þegar kemur að því að ganga í Evrópusambandið, tekið það sem þeim hentar og sleppt því sem þeim finnst óþægilegt. Svigrúmið til þess minnkar nú verulega eftir því sem völdin færast í meira mæli til Brussel.

Það er ágætt að þessi ágæti talsmaður Samfylkingarinnar viðurkennir hér í þessari umræðu að markmiðið er ekki að fara inn í Evrópusambandið eins og það er í dag heldur Evrópusambandið eins og það virðist vera að þróast með auknu fullveldisframsali, með aukinni miðstýringu frá Brussel og með minna valdi þjóðríkjanna.