lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Birgis Ármannssonar en að öðru leyti vil ég bara þakka þeim sem ætla að leyfa okkur að vera hér í kvöld og tala því að við þurfum að ræða mjög mikilvægt mál.
Ég óska eftir því við hæstv. forseta að hún sjái til þess að við umræðuna hér í kvöld og í nótt verði ráðherrar á vegum ríkisstjórnarinnar og stjórnarþingmenn því að það er vitanlega það ágæta fólk sem við þurfum að tala við og fá hingað til að svara spurningum sem við leggjum fram. Það hlýtur að vera eðlileg krafa frá stjórnarandstöðunni að þeir sem bera málið fram séu hér til svara og komi þá inn í umræðuna þegar við á.
Að öðru leyti vil ég geta þess að ég mun greiða atkvæði á móti kvöldfundi en ég óska þá eftir að sjá þá hér í kvöld sem ætla að samþykkja hann.