140. löggjafarþing — 116. fundur,  8. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[11:22]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég er bara aumur þingmaður í stjórnarandstöðu með lögfræðipróf frá Háskóla Íslands. Ég ætla samt að benda á þá sem eru mér vitrari í þessum málum og lesa upp úr umsögn frá Stefáni B. Gunnlaugssyni, lektor við Háskólann á Akureyri, og Daða Má Kristóferssyni, dósent við Háskóla Íslands, sem hafa ítrekað varað við samþykkt þessara frumvarpa. Ég spyr: Hvers vegna hlusta menn ekki á þá? Hentar sú niðurstaða ekki eða ráðleggingar frá þessum fræðimönnum?

Þeir segja meðal annars, með leyfi forseta:

„Að lokum ber að undirstrika að ekki er hægt að horfa á álagningu veiðigjalda afmarkað. Samræmi verður að vera milli gjaldtöku og annarrar umgjarðar fiskveiðistjórnarkerfisins. Ef vegið er að möguleikum til hagræðingar og langtímahagkvæmni mun það skerða umfang auðlindarentunnar og draga úr getu útgerðarinnar til að standa undir veiðigjöldum.“

Þá er ég komin að því sem verið hefur rauði þráðurinn í málflutningi mínum í þessu máli og varðar „atvinnurekendavaldið“ eins og menn orða svo ósmekklega. Það er ekkert verið að segja annað en að launþegar hafi ekki sjálfstæða skoðun og ég mótmæli því. Þess vegna dró ég fram reynslu mína í baráttu fyrir mjög erfiðu máli innan menntakerfisins. Ekki kom mér til hugar að draga það fram í umræðunni að nemendur væru í annarlegri stöðu gagnvart kennurum sínum og færu út á Austurvöll að mótmæla til að þóknast kennurunum. Mér finnst það ósmekklegt í hæsta máta.

Ég hvet hv. þingmann, sem greinilega hefur mikið um þetta mál að segja, og getur bæði beitt sér málefnalega og kraftmikið, eins og við öll þekkjum, fyrir því að við setjumst niður og hlustum á þessar raddir. Ekki barst ein einasta umsögn um málið þar sem hvatt var til þess að það yrði samþykkt. Af hverju er ekki hægt að hlusta á þær raddir og þá líka þær raddir sem heyrðust á Austurvelli? (Forseti hringir.) Þær verða líka dregnar fram til að ná fram sem bestri niðurstöðu fyrir land og þjóð. Það er markmið í sjálfu sér að reyna að ná sátt í þessu máli.