140. löggjafarþing — 116. fundur,  8. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[12:13]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að hv. þingmaður hitti þarna naglann á höfuðið. Þeir sem lítið vita um sjávarútveg — margir þeirra sitja á Alþingi — og þeir sem skilja þennan sjávarútvegsklasa ekki — margir þeirra sitja á Alþingi — gera sér ekki grein fyrir þessum miklu áhrifum. Ég talaði við eiganda eins af okkar glæsilegustu fyrirtækjum í gær, eiganda Marels, og hann sagði mér að hann hefði verið að koma frá Suður-Ameríku þar sem fyrirtækið hefði gert mikla samninga um véla- og tæknisölu vegna kjötframleiðslu, þá sérstaklega í Úrúgvæ. Marel er frábært dæmi um lítið sprotafyrirtæki sem þróast innan þessa sjávarklasa við að þjónusta fiskvinnsluna og fiskveiðarnar. Síðan stækkar það og þegar það er komið að einhverjum mörkum innan þessa klasa fer það að leita út fyrir þau og nú er svo komið að Marel er orðið stærra í kjötinu en fiskinum.

Auðvitað viljum við að þetta gerist, að fyrirtæki sem í grunninn byggja á sjávarútvegsklasanum þróist, verði síðan stór og nái yfir fleiri atvinnugreinar. Lagabreytingar eins og við erum að ræða hérna eru besta leiðin til að drepa niður slíka viðleitni og slíka sprota.