veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir mjög yfirgripsmikla ræðu um það hvernig þróunin á sjávarútvegskerfinu hefur gengið fyrir sig. Það er mjög mikilvægt að hafa það í huga sem hv. þingmaður nefndi að þær breytingar sem gerðar hafa verið undanfarinn áratug, jafnvel lengur, hafa einmitt miðað að því að styrkja rekstrargrundvöll smábátaútgerðarinnar enda er svo komið að það eru ekki síður þeir aðilar sem hafa miklar áhyggjur af þeim frumvörpum sem liggja fyrir þinginu, ekki síst frumvarpi um veiðigjöld, því að það er að sjálfsögðu verið að leggja mjög þungar og miklar byrðar á þessi fyrirtæki líkt og önnur.
Það hefur orðið mikil hagræðing í íslenskum sjávarútvegi frá því að kvótakerfið var sett á á sínum tíma, kvótakerfi sem margar þjóðir vildu gjarnan taka upp og ríkjasambönd á borð við Evrópusambandið líta til, kvótakerfi sem nýverið var tilnefnt til verðlauna á vegum alþjóðlegra samtaka fyrir það hversu mikil lífsgæði það hefur skapað á Íslandi. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í hvaða áhrif það hefði á samkeppnisstöðu Íslendinga ef þessu kerfi yrði kollvarpað eins og hugmyndir virðast vera uppi núna um, ef því yrði kollvarpað með því að gera útgerðirnar í raun ósjálfbærar. Við keppum einna helst á mörkuðum þar sem verið er að selja ríkisstyrktar sjávarafurðir en sjávarútvegur í mörgum Evrópulönd og öðrum löndum er styrktur mjög ríflega af ríkjum sínum eða ríkjasamböndum eins og Evrópusambandinu. Samkeppnisforskotið hlýtur þá að vera þeim í hag sem njóta styrkja ef hagræðingin (Forseti hringir.) og hagkvæmnin hverfur út úr íslenskum sjávarútvegi.