140. löggjafarþing — 116. fundur,  8. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[12:41]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F):

Frú forseti. Reynt er að draga upp þá mynd að þeir sem hafa efasemdir um það mál sem við ræðum eða uppsetningu þess séu einfaldlega mótfallnir því að skoða breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu og séu mótfallnir því að sett verði á hóflegt veiðigjald. Þetta hefur verið gert í pólitískum tilgangi meðal annars af stjórnarliðum, hv. þingmönnum Samfylkingarinnar nú í morgun og fleiri aðilum, þar sem reynt er að halda því fram að þeir sem hafa tjáð sig um þessi mál og eru ekki sammála ríkisstjórninni séu einhvers konar handbendi LÍÚ. Ég vil vísa þessu alfarið á bug. Þegar við skoðum það sem sveitarfélögin allt í kringum landið, Alþýðusambandið og fleiri aðilar segja og benda á í umsögnum sínum þá kemur skýrt fram vilji til að gera ákveðnar breytingar á sjávarútvegskerfinu, vilji til að setja á hóflegt veiðigjald. En menn hafa hins vegar áhyggjur af byggðarlögum sínum, menn hafa áhyggjur af stöðu sveitarfélaganna og af stöðu landsbyggðarinnar í þessu sambandi.

Þegar við ræðum um veiðigjald, eins og við erum að gera núna, skiptir miklu máli hver upphæðin er á slíku veiðigjaldi, hvernig það er innheimt og hvert það rennur og með hvaða hætti því er útdeilt aftur.

Ekki er nema von að margir á landsbyggðinni hafi áhyggjur af þróun mála. Ef við horfum á hvernig þróunin hefur verið á undanförnum áratugum og hvernig hún hefur síðan haldið áfram frá því að þessi ríkisstjórn tók við, og jafnvel á enn meiri hraða, þá hefur landsbyggðin mátt horfa upp á gríðarlega fólksfækkun. Við vitum að á árunum fyrir hrun var þenslan ekki sú sama á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu og við vitum öll að sú loftbóla sem varð til í íslensku hagkerfi varð ekki til á landsbyggðinni. Það varð gríðarleg fólksfækkun á landsbyggðinni og erfiðleikar hjá fyrirtækjum þar meðan góðærið var í gangi.

Síðan tekur núverandi ríkisstjórn við og stefna hennar virðist hafa verið sú í einu og öllu að ganga að landsbyggðinni. Við höfum horft upp á það til að mynda í heilbrigðismálum þar sem átti að gera byltingu á heilbrigðiskerfinu á landsbyggðinni og átti að birtast byggðarlögunum í gegnum fjárlög algerlega óundirbúið. Áhrif þessa höfðu á engan hátt verið skoðuð. Niðurstaðan af þeim aðgerðum er að koma í ljós. Opinberum störfum hefur fækkað mikið á landsbyggðinni á mörgum svæðum, til að mynda á Norðurlandi vestra þar sem hefur fækkað um tugi opinberra starfa á undanförnum þremur árum.

Við sjáum þetta líka í samgöngumálum, niðurskurður þar kemur illa niður á landsbyggðinni. Mörg samgönguverkefni, viðhaldsverkefni o.fl. eru látin sitja á hakanum. Margir hafa haft áhyggjur af þeirri þróun en ríkisstjórnin virðist ekki hafa þær áhyggjur. Þegar ríkisstjórnin var að ræða fjárlög þarsíðasta árs kom fram hugmynd um að gera sérstaka byggðaúttekt á fjárlögunum. Rétt eins og að gera kynjaða úttekt á fjárlögunum væri eðlilegt að gera byggðaúttekt á fjárlögunum til að sjá hvaða áhrif það hefði á einstök byggðarlög, þessi gígantíski niðurskurður í velferðarþjónustunni, löggæslumálum, samgöngumálum og fleiru. Það er nefnilega staðreynd að mörg sveitarfélög og mörg byggðarlög þola ekki frekari fólksfækkun. Á þetta hefur verið bent af öllum sveitarfélögum á Vestfjörðum þar sem menn hafa gríðarlegar áhyggjur af því hversu mikil fólksfækkun er og ef þetta fer undir ákveðin mörk þá verði ekki aftur snúið því að ákveðinn fólksfjölda þarf til að byggja samfélag. Menn horfa upp á mjög mikla fækkun í grunnskólanum til að mynda á Ísafirði þar sem nemendum hefur fækkað um 25% þar á undanförum árum. Menn spá því að ef þetta heldur línulega áfram með sama hætti þá gætu Vestfirðir verið búnir að þurrkast út að tíu árum liðnum. Þetta er eitthvað sem við getum ekki hunsað, frú forseti. Við verðum að horfa á þetta með þeim augum. Þess vegna verðum við að horfa á þetta mál, veiðigjöldin, út frá þeim landsbyggðarsjónarmiðum líka. Það liggur alveg ljóst fyrir að stór hluti af veiðigjaldinu mun koma frá fyrirtækjum á landsbyggðinni og renna inn í ríkissjóð ef frumvarpið nær fram að ganga.

Fram hefur komið krafa frá fjórðungsþingi Vestfirðinga sem haldið var í Bolungarvík 2.–3. september 2011 þar sem segir, með leyfi frú forseta:

„56. fjórðungsþing Vestfirðinga haldið í Bolungarvík 2.–3. september 2011 skorar á Alþingi að tryggja að það auðlindagjald sem nú er innheimt af vestfirskum aflaheimildum og öll aukning þess renni til uppbyggingar atvinnulífs á Vestfjörðum. Auðlindagjaldið renni til rannsókna, nýsköpunar og í fjárfestingarsjóð fyrir vestfirskar byggðir.“

Frú forseti. Í ljósi sögunnar og í ljósi þess hvernig Vestfirðir — ég tek þá bara sem dæmi — hafa mátt glíma við fólksfækkun og margvíslega erfiðleika í sinni uppbyggingu þá er ekki til of mikils mælst að þeir fjármunir sem innheimtast af veiðigjaldi renni með beinum hætti til hinna dreifðu byggða.

Fram hefur komið í ræðum, meðal annars hjá hv. þm. Jóni Bjarnasyni, sem áður var hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að þær hugmyndir sem hann vann að þegar hann átti sæti í ríkisstjórn hafi ávallt miðað að því að stór hluti af þessu auðlindagjaldi rynni beint til landsbyggðarinnar aftur, ýmist til sveitarfélaga eða beint til byggðatengdra verkefna. Hann hefur sagt það hér að hann furði sig á því hvers vegna vikið hafi verið frá byggðatengingum nú í nýju frumvarpi. Við sem þekkjum til vitum að Samfylkingin og gamli Alþýðuflokkurinn hefur aldrei verið mikill byggðaflokkur og það hefur aldrei verið skulum við segja efst á blaði að styrkja og efla landsbyggðina eða halda henni í byggð, því miður. Þannig hafa línurnar verið. En hins vegar hefur núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, haft það orð á sér að vilja standa vörð um hinar dreifðu byggðir, viljað tryggja og efla uppbyggingu þeirra. En það eru margir farnir að efast um það, meðal annars hefur það komið fram í máli hv. þm. Jóns Bjarnasonar, flokksbróður hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að hann hefði viljað sjá byggðatengingarnar með öðrum hætti í þessu frumvarpi en raun ber vitni. Maður hlýtur að spyrja: Hvað er það sem veldur því að í fjárlagafrumvarpinu, þegar Steingrímur J. Sigfússon var fjármálaráðherra, var gengið fram með gríðarlegar niðurskurðartillögur í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni, þar sem vegið er að grunnþjónustu landsbyggðarinnar, en svo skulum við fá þetta frumvarp þar sem ekki er gert ráð fyrir að þeir fjármunir renni aftur út til hinna dreifðu byggða? Þarna er ég bara að tala um hvernig þetta er innheimt, þá er ég ekki að tala um upphæðina á gjaldinu sem er of há eins og hún er í dag.

(Forseti (UBK): Forseti vill biðja hv. þingmann um að finna hentugan stað í ræðu sinni til að gera hlé. Eins og forseti hafði komið til hv. þingmanns er nauðsynlegt að gera hlé á ræðu þingmannsins vegna hádegishlés.)

Frú forseti. Það mundi bara henta vel núna.