140. löggjafarþing — 116. fundur,  8. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[21:15]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Enginn vafi er á því að á ákveðnu árabili mundi það rústa því kerfi sem hér er við lýði og þeirri hagkvæmni sem þar er. Ég fór ekki í gegnum alla þá þætti en það er augljóst að svo yrði. Hefur hæstv. ráðherra á opnum fundi viðurkennt að ýmsir gallar væru í þessu en ætlar að hafa einhverja sérstaka þriggja manna nefnd sem á að fara með skattlagningarvaldið og veita afslátt hér og þar vegna þess hversu gallað þetta er.

Ég nefndi það sérstaklega á sama hátt og ég benti á hina augljósu kosti sem eru öllum augljósir, að það sem menn lögðu til grundvallar þegar þeir sömdu frumvarpið er ekki fullkomið, þetta mannanna verk. Ég hefði viljað ræða það og tel það eðlilegt ef við ætlum að betrumbæta þetta kerfi, sem mér finnst eðlilegt og sjálfsagt, að við ættum að skoða það hvort við getum sett meiri fisk á markað en nú er. Mér finnst það eðlilegt.

Mér finnst einnig ýmislegt sem snýr að vigtunarmálum sem við ættum að fara yfir hér. Ég næ ekki að klára meira í þessu andsvari.