fundarstjórn.
Frú forseti. Ég get tekið efnislega undir með hv. þingmönnum Árna Johnsen og fleirum um að nauðsynlegt sé að ræða málið mjög ítarlega og það hefur verið gert hérna og margar fínar og efnislegar ræður verið haldnar og málið hefur skýrst mjög. Til að fara betur yfir það í nefndinni blasir við að ef um það er beðið verður málið tekið inn á milli umræðna. Þess vegna er ekkert því til fyrirstöðu að mínu mati að ljúka 2. umr. því 3. umr. er alltaf eftir. Það er engin ástæða til að fresta málinu í miðri 2. umr. heldur er eðlilegt að hún gangi fram. Þetta er sjötti dagur umræðunnar og ef menn telja þörf á því þá gengur málið til nefndar á milli umræðna og svo komum við aftur í 3. umr. þar sem hér getur geisað löng og mikil umræða ef þingmenn telja þörf á því.
Það hefur komið fram í andsvörum og ræðum að í meginatriðum er sátt um prinsippið, gjaldtökuna sem slíka. Forsendunum hefur verið breytt frá því að málið kom fram fyrst og nú er bara eftir að lenda því. (Forseti hringir.) Það er stutt á milli manna, stjórnar og stjórnarandstöðu í þessu máli og ekkert því til fyrirstöðu að lenda málinu í sátt en það þarf að klára 2. umr., málið gangi til nefndar og síðan til 3. umr.