140. löggjafarþing — 117. fundur,  9. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[10:57]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Hugmyndir um veiðigjald eru ekkert nýjar af nálinni. Það var ágæt upprifjun sem fram kom hjá hv. þm. Einari Kristni Guðfinnssyni um tildrög þessara hugmynda, þeirrar hugmyndafræði sem að baki liggur, og ég geri það að umtalsefni í fyrri hluta ræðu minnar.

Á sínum tíma var það einkum Alþýðuflokkurinn sem lagði áherslu á að taka upp slíkt veiðigjald. Þær hugmyndir byggðu á þeirri kenningu og reyndar á þeirri staðreynd að of mörg skip sóttu Íslandsmið og hér voru of margar fiskvinnslur og spurningin var hvernig rétta ætti þann vanda. Hugmyndin sem lá að baki veiðileyfagjaldinu var sú að með því að leggja á gjald og hafa það nægjanlega hátt mundi hluti fiskvinnslunnar og hluti útgerðarinnar ekki standast það gjald og dytti út úr greininni, en þau fyrirtæki sem væru hagkvæmari fyndu leiðir til að auka hagkvæmni sína eftir að gjaldið væri lagt á og héldu áfram rekstri, sú var hugmyndin. Þegar þessar hugmyndir voru settar fram fór enginn í grafgötur með að gengi slík gjaldtaka fram yrði um að ræða þessa þróun, enda var lagt upp með það. Sá var tilgangur gjaldtökunnar að fækka útgerðarfyrirtækjum og fækka fiskvinnslufyrirtækjum.

Þeir sem lögðu þessa leið til og þeir hagfræðingar sem töluðu fyrir þessu bættu fleiru við. Þeir bentu á að sem mótvægisaðgerð væri eðlilegt að gengi íslensku krónunnar mundi falla, enda væri við því að búast þegar samkeppnisstaða svo stórs hluta sjávarútvegsins mundi raskast svo mikið. Menn gerðu sér sem sagt grein fyrir því að það yrði ekki afleiðingalaust að leggja jafnmikið gjald á greinina og það mundi hafa áhrif bæði á fjölda fyrirtækja og á gengi íslensku krónunnar.

Þá var hugmyndin sú að veiðigjaldið sem rynni í ríkissjóð yrði síðan notað til þess að lækka skatta á almenning til að mæta þeim búsifjum sem fylgdu því að gengi íslensku krónunnar mundi falla, sem er nokkuð athyglisvert og þeir hv. þingmenn sem mælt hafa frumvarpinu bót mættu hafa það hugfast. Með öðrum orðum, þeir sem mæltu fyrir upptöku veiðileyfagjaldsins, forustumenn Alþýðuflokksins á árum áður, og þeir hagfræðingar sem studdu þar við gerðu sér ljóslega grein fyrir afleiðingum þess að taka upp gjald með þessum hætti og stóðu margir gegn því. Sjálfstæðisflokkurinn stóð gegn því, Framsóknarflokkurinn stóð gegn því og Alþýðubandalagið stóð gegn því.

Ég tel að þau rök sem flutt voru gegn þessum hugmyndum, gegn tillögum Alþýðuflokksins, eigi jafn vel við núna og þau áttu þegar þessar hugmyndir voru ræddar hvað mest hér á árum áður. Í grundvallaratriðum hefur ekkert breyst. Vissulega sveiflast afkoma sjávarútvegsins til og frá, það árar stundum vel og stundum illa. Lögð hefur verið á það áhersla af hálfu ríkisvaldsins að það sé sjávarútvegsins sjálfs að sveiflujafna, gæta þess að leggja fyrir og greiða niður skuldir þegar vel gengur þannig að menn komist í gegnum óumflýjanlegar niðursveiflur þegar þær koma. Grundvallarþættir málsins eru því þeir hinir sömu og áður og hafa í engu breyst.

Það sem kemur á óvart og þarfnast einhvers konar skýringa er hvers vegna arftaki Alþýðubandalagsins, stjórnmálahreyfingin Vinstri hreyfingin – grænt framboð, skuli hafa umpólast í þessu máli. Vitnað hefur verið til orða forustumanna hreyfingarinnar og hægt er að finna fjölmörg dæmi um vasklegan og vel rökstuddan málflutning gegn þessum hugmyndum Alþýðuflokksins. Sá málflutningur bar einkum og sér í lagi það yfirbragð að menn höfðu áhyggjur af því að gjaldtakan mundi fara mjög illa með landsbyggðina. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að þarna sé ekki bara landsbyggðin undir heldur séu menn að gera allt efnahagskerfið að leiksoppi með þessum hugmyndum. En rauði þráðurinn í svörum þeirra sem verið hafa í forustu fyrir Vinstri græna og Alþýðubandalagið þar á undan hefur verið staða landsbyggðarinnar og að það sé ósanngjarnt og óeðlilegt og ekki rétt í skattalegu tilliti að fara fram með eitthvert sérstakt veiðigjald. Enn og aftur má finna fjölmörg ummæli um þetta frá forustumönnum á vinstri væng íslenskra stjórnmála.

Ég hlýt því að velta aðeins fyrir mér: Hvernig stendur á því að flokkur eins og Vinstri grænir skuli hafa umpólast í þessu máli? Ég bendi reyndar á að í Morgunblaðinu í dag er grein eftir tvo hv. þingmenn, Atla Gíslason, sem áður var í þingflokki Vinstri grænna, og Jón Bjarnason, fyrrverandi hæstv. ráðherra, sem er vissulega að nafninu til enn í þingflokki Vinstri grænna en hann hefur markað sér þó nokkra sérstöðu þar. Í greininni lýsa hv. þingmenn sjónarmiðum og viðhorfum sem eru mjög í takti við þau sjónarmið sem uppi voru hjá forustumönnum Vinstri grænna og Alþýðubandalagsins þar áður.

Það er aftur umhugsunarefni hvernig á þessu stendur og ég ætla að leyfa mér í það minnsta að velta einni mögulegri lausn fyrir mér. Hún er sú að forustumenn Vinstri grænna séu í þeirri stöðu gagnvart Samfylkingunni að geta sig hvergi hrært vegna þess að staðan í þessu máli er með einhverjum hætti hin sama og í Evrópumálunum. Óþarfi er að nudda forustumönnum Vinstri grænna upp úr ummælum þeirra um það mál en augljóst er að það eru mikil líkindi á milli þessara tveggja mála.

Ég er enginn sérstakur áhugamaður um velgengni Vinstri grænna í kosningum. Ég tel að sá flokkur hafi komið mjög vel út úr kosningunum 2009 og að staða hans í skoðanakönnunum núna sé meira í ætt við það sem ég tel að vænta megi við eðlilegar aðstæður. En það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir þá sem eru í forustu fyrir þann flokk hvernig þessir hlutir ganga fyrir sig. Ég er nokkuð viss um að að hluta til megi leita skýringarinnar í því hvernig flokkurinn hefur farið frá grundvallarsjónarmiðum sínum í þessu máli, í sjávarútvegsmálunum, og látið teyma sig inn í afstöðu Samfylkingarinnar.

Sú hugmyndafræði sem lá að baki útfærslu veiðigjaldsins á tímum Alþýðuflokksins var miklum mun skýrari og menn gerðu sér glögga grein fyrir afleiðingum gjaldtökunnar. Reyndar voru afleiðingarnar í raun forsenda þess að gjaldið yrði tekið upp. Það er svolítið undarlegt, og skýrir kannski hvers vegna ræða þarf þetta mál vel á Alþingi, að margir hv. þingmenn skuli láta þannig í orði að gjaldtaka eins og lögð er til í frumvarpinu hafi mestmegnis jákvæð áhrif á greinina og það styrki byggðirnar að gera setja á veiðigjald, þrátt fyrir að fyrir liggi umsagnir sveitarstjórnarmanna, háskólamanna og þeirra sem gerst þekkja til í þessum fræðum sem allar eru á annan veg.

Þá er nauðsynlegt að við þingmenn gefum okkur tíma til að fara í gegnum þetta og um leið að forustumönnum Vinstri grænna gefist tækifæri til að útskýra hvers vegna þeir hafa tekið upp stefnu Alþýðuflokksins í þessu máli, því að fyrir þá sem áhuga hafa á stjórnmálum og þjóðmálaumræðu væri heilmikið gildi fólgið í því að einhver slík skýring kæmi fram.