140. löggjafarþing — 117. fundur,  9. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[11:44]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er náttúrlega alveg makalaust og ég held að ein mesta meinsemdin í íslensku samfélagi núna sé kergjan og þykkjan í forustumönnum ríkisstjórnarinnar að vilja ekki hlusta á umsagnir, umfjallanir og vel ígrundaðar ábendingar allra þeirra sem koma að þessu máli. Það er hægt að fara með þetta mál og vera með hótanir en þetta eru mjög ósmekklegar hótanir að mínu mati.

Ég get líka spurt: Af hverju byrjar þá ekki forsætisráðherra að tala um það hvernig hún ætlar að stoppa upp í það 19 milljarða gat sem myndaðist vegna þess að ríkissjóður þurfti að púkka upp á SpKef? Hvað með það? Eða er veiðigjaldið kannski sett á til þess að borga fyrir öll mistök ríkisstjórnarinnar, ráðstafanir hennar vegna fjármálafyrirtækjanna og þau mistök sem átt hafa sér stað á umliðnum þremur árum? Það eru engar smáfjárhæðir. Það veit hv. þm. Eygló Harðardóttir sem komið hefur með góða greiningu á því og þekkir þau mál öll mjög vel. Það eru gríðarlegar fjárhæðir sem koma fram núna, 19 milljarðar hér og einhverjir milljarðar þar.

Það getur vel verið að ríkisstjórnin vilji ekki kom hreint fram og segja: Í rauninni er veiðigjaldið til þess að stoppa upp í öll þessi mistök okkar og fela þau. Það getur vel verið að þetta sé frekar leiðin en hún er ekki fallin til vinsælda.

Mér finnst afar ósmekklegt að þegar fólkið á landsbyggðinni stendur frammi fyrir miklum erfiðleikum í samgöngumálum, ekki síst á Norðfirði varðandi Norðfjarðargöngin, sem verður að mínu mati að fara sem fyrst í, og á Vestfjörðum, að menn komi fram með þessum hætti og hóti fólki: Ef þið samþykkið ekki veiðigjaldið fáið þið bara ekki neitt, vesgú, þar hafið þið það. Þetta er með ósmekklegri nálgunum síðari tíma að mínu mati. (BJJ: Rétt.)