140. löggjafarþing — 117. fundur,  9. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[12:08]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Herra forseti. Það er athyglisverður punktur sem hv. þm. Ólöf Nordal kemur inn á og snertir samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs. Það er alveg rétt að ef fram fer sem horfir í skattlagningu þá mun draga verulega úr þeirri samkeppnishæfni sem ég hélt að fulltrúar Samfylkingarinnar vildu verja og kannski ekki hvað síst þegar kemur að undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar. Við erum að tala um 35 þúsund einstaklinga sem eiga með einum eða öðrum hætti afkomu sína bundna við íslenskan sjávarútveg. Í umsögnum um frumvarpið hefur komið fram, og væri ágætt að heyra sjónarmið hv. þingmanns um það, að okkar virtustu fræðimenn hafa leitt að því líkur að verði haldið fram sem horfir þurfi að skerða kjör sjómanna og fiskvinnslufólks í landinu. Auk þess muni svigrúm sjávarútvegsins minnka til að stuðla að tækninýjungum eða nýsköpunarfyrirtækjum og taka þátt í sjávarklasaverkefnum o.fl.

Við höfum búið við mjög arðbæran sjávarútveg á umliðnum árum en við vitum því miður ekki í umræðunni um þetta veiðigjald hver stefna ríkisstjórnarinnar verður þegar kemur að fiskveiðistjórnarkerfinu sjálfu í framtíðinni. Að sjálfsögðu hefði þurft að vera búið að afgreiða það mál til að geta átt efnislega umræðu án þess að hún væri svona þokukennd. Við vitum ekki hvað meiri hluti nefndarinnar ætlar að gera þegar kemur að grundvallarfyrirkomulagi í fiskveiðistjórn hér á landi á næstu árum og áratugum.

En aðalatriði er, fyrir utan það að mögulega munu laun fólks í sjávarútvegi og í sjávarbyggðum lækka, að jafnframt er verið að skattleggja sjávarbyggðir hringinn í kringum landið með frumvarpinu um veiðigjald. Mig langar að heyra frá hv. þingmanni og varaformanni Sjálfstæðisflokksins hvort hún sé sátt við það sem fyrrverandi þingmaður Norðausturkjördæmis að verið sé að vega enn frekar að landsbyggðinni með þessari aukaskattlagningu án þess að einhverjar tekjur skili sér til baka að einhverju marki.