veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Ég er svo sannarlega stolt af því að vera landsbyggðarþingmaður og tel að þar séu mörg lífsgæði sem við getum verið afar ánægð með. Ég er alin upp í Hafnarfirði sem er stór útgerðarbær og geri ráð fyrir því að Hafnarfjörður og Reykjavík greiði að sjálfsögðu sinn hlut í þessu auðlindagjaldi. Mér finnst það skipta höfuðmáli að við gerum ráð fyrir því að það sé þjóðin, ekki bara einhverjir einstaklingar, ekki bara tiltekinn hluti þjóðarinnar heldur öll þjóðin sem njóti arðs af þessari auðlind. Þess vegna finnst mér að það megi ekki taka fyrir bæi eins og Fljótsdalshérað, sem nota bene var eitt af þeim sveitarfélögum sem ekki sendi neikvæða umsögn um þetta frumvarp, (Gripið fram í.) jafnvel þó svo að þar séu framsóknarmenn í stjórnarmeirihluta. Ég held að við verðum að gera okkur grein fyrir því að þjóðin á að fá eðlilegt afgjald af þessari auðlind sinni.
Ég held að allir þingmenn ættu að taka höndum saman því að við erum öll sammála um prinsippin. Nú þurfum við bara að finna útfærsluna. Það þarf að vera hófleg gjaldtaka. Það eru ákveðnar forsendur sem liggja fyrir og við vitum að fyrir liggja breytingartillögur meiri hlutans um að lækka þetta gjald talsvert mikið — það veit hv. þingmaður ágætlega — og við skulum reikna út frá þeim forsendum.
Þeir 72 milljarðar sem hér komu fram — það er eitthvað óeðlilegt við þá tölu þar sem aldrei hefur verið gert ráð fyrir því að afgjald yrði meira en 25 milljarðar, hámarkið. Þarna er eitthvað (Gripið fram í: Nei.) sem er ekki alveg í lagi. (Gripið fram í.)
Nú langar mig til að skora á hv. þingmann þar sem hann hefur lokið ræðu sinni að við skundum út á flugvöll og flýtum okkur austur á land til að fagna með Reyðfirðingum.