veiðigjöld.
Herra forseti. Ég kem upp til að taka undir orð hv. þm. Álfheiðar Ingadóttur. Við eigum ekki að viðhafa gífuryrði af verstu sort í þessari pontu og tek ég þar með líka undir orð hv. þm. Ragnheiðar E. Árnadóttur. Við eigum að fara með gát þegar við tölum hvert um annað. Það gerði hv. þm. Árni Johnsen ekki í ræðu sinni um veiðigjaldamálið, hvorki fyrr né síðar, þar sem hann bar þingmenn mjög þungum sökum og fjölskyldur þeirra sem maður skyldi aldrei gera vegna þess að þær geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér í þessum stóli. Það er svo vægt sé til orða tekið lélegt af þingmanni sem hér stendur. Þess vegna hljótum við að gera sömu kröfu til hv. þm. Árna Johnsens um að hann biðjist afsökunar á orðum sínum og við gerðum til hv. þm. Björns Vals Gíslasonar, en hann hefur einmitt beðist afsökunar á orðum sínum.