140. löggjafarþing — 117. fundur,  9. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[13:06]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé alveg ljóst að menn deila kjörum, alveg eins og Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi þingmaður Alþýðubandalagsins og núverandi hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sagði þá. Ég þekki það fyrst og fremst í gegnum þá staðreynd að þegar ég flutti til Vestmannaeyja 2002–2003 var staðan mjög erfið vegna mjög hás gengis krónunnar. Maður sá það bara á niðurníðslu húsanna, maður sá það á erfiðri skuldastöðu sveitarfélagsins, maður sá það á því að í mörg ár var varla byggt eitt einasta hús í Eyjum.

Í dag er það hins vegar orðið þannig að sá hv. þingmaður er hér stendur er kannski sá sem þyrfti einna helst á því að halda að fara að lagfæra húsið sitt ef ég ber saman húsin við götuna þar sem ég bý hvað varðar viðgerðir og þá velsæld sem ég sé þar núna.

Ég sé svo mikla breytingu bara frá því árið 2008 á stöðu íbúanna í bæjarfélaginu. (Forseti hringir.) Það endurspeglast í þeim mikla ótta og óróa sem þessar breytingar vekja (Forseti hringir.) hjá íbúum þessara byggðarlaga.