140. löggjafarþing — 117. fundur,  9. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[14:41]
Horfa

Forseti (Álfheiður Ingadóttir):

Forseti vill vekja athygli á því sem áður hefur komið fram að nærveru hæstv. fjármálaráðherra var óskað hér í morgun og hæstv. fjármálaráðherra og iðnaðarráðherra sat hér og fylgdist með umræðum fram eftir degi. Nú er hæstv. iðnaðarráðherra að sinna skyldustörfum utan þings. (Gripið fram í: Sat í fjórar mínútur í salnum.)