viðbúnaður vegna óróa á evrusvæðinu.
Frú forseti. Það eru að sjálfsögðu veruleg tíðindi þegar Spánn hefur séð sig knúinn til að leita eftir aðstoð úr sameiginlegum evrópskum sjóðum til að bjarga bankakerfi sínu og verja efnahagslíf sitt. Ég held að augljóst sé að við vonum að það takist því við mundum að sjálfsögðu verða þolendur þess eins og aðrir ef allt færi á hliðina í þessu fjórða stærsta hagkerfi Evrópusambandsins og þar sem mikilvægir útflutningsmarkaðir okkar liggja, ekki síst fyrir verðmætan saltfisk. Það er lán í óláni að spænska ríkið var ekki mjög skuldugt áður en þessi ósköp dundu yfir og hefur þar af leiðandi eitthvert borð fyrir báru til að skuldsetja sig en á móti kemur að efnahagsástandið er afar bágborið og atvinnuleysið skelfilegt þannig að það sér engan veginn fyrir endann á því hvernig öll þessu reiðir af.
Varðandi viðbúnað íslenskra stjórnvalda er svarið já. Við höfum farið yfir það ítarlega á síðasta ári og aftur nú undanfarnar vikur hvaða áhrif þetta gæti haft á Ísland. Að því hafa komið allir þeir sem tengjast samstarfi stjórnvalda um fjármálastöðugleika og viðbúnað við efnahagsáföllum. Reyndar hefur verið beðið um umræðu á Alþingi um það mál þannig að vonandi gefst okkur færi á að taka hana og hafa þá til þess aðeins meiri tíma. En fljótt á litið er Ísland í sæmilegu vari fyrir þessum sviptingum, að minnsta kosti til skamms tíma litið vegna þess að hér eru gjaldeyrishöft, hér eru bankar fjármagnaðir innan lands og ekki háðir aðgangi að erlendum fjármálamörkuðum, þótt auðvitað væri æskilegt að þeir mundu opnast. Ríkið er vel fjármagnað, á fyrir öllum afborgunum. Gjaldeyrisvaraforðinn er stór og fleira mætti nefna sem allt gerir að verkum að íslenska ríkið og íslenskt efnahagslíf er sæmilega varið. En það er augljóst að líklegustu áhrifin og þau sem kæmu fyrst fram eru versnandi viðskiptakjör og það mundi að sjálfsögðu hafa neikvæð áhrif fyrir okkur. En það steðjar ekki nein bráðahætta að því er talið er (Forseti hringir.) að Íslandi, íslensku efnahagslífi og íslenska ríkinu eða íslenska fjármálamarkaðnum. Mestu áhyggjuefnin tengjast möguleikanum á versnandi viðskiptakjörum.