140. löggjafarþing — 118. fundur,  11. júní 2012.

framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2014.

440. mál
[11:28]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Jónína Rós Guðmundsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og ég sagði áðan erum við með sérstakan aðgerðalið í framkvæmdaáætluninni um samning Sameinuðu þjóðanna. Þar felum við innanríkisráðuneytinu að fara yfir löggjöf á sínu málefnasviði og leggja til breytingar til samræmis við samninginn og jafnframt að íslensk þýðing samningsins verði endurskoðuð. Það er hluti af því verkefni að yfirfara löggjöfina til þess að kanna hvort það séu fleiri atriði sem þarf að skoða sérstaklega áður en þessi löggilding á sér stað. Mælikvarðinn er sá að við vonumst til þess að frumvarp til fullgildingar samningsins verði lagt fram eigi síðar en á vorþingi 2013.