140. löggjafarþing — 118. fundur,  11. júní 2012.

stefna um beina erlenda fjárfestingu.

385. mál
[11:55]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Helgi Hjörvar) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti efnahags- og viðskiptanefndar á þskj. 1015 um tillögu til þingsályktunar, stjórnartillögu, á þskj. 498, um stefnu um beina erlenda fjárfestingu.

Efnahags- og viðskiptanefnd hefur fengið á sinn fund talsverðan hóp umsagnaraðila og umsagnir sömuleiðis en málið var jafnframt til umfjöllunar í hv. atvinnuveganefnd. Er skemmst frá því að segja að umsögn hv. atvinnuveganefndar er öll á einn veg þar sem tillögunni er fagnað og lýst eindregnum stuðningi við efni hennar. Að umsögn atvinnuveganefndar stóðu þau hv. þingmenn Kristján L. Möller, Ólína Þorvarðardóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Einar K. Guðfinnsson, Jón Gunnarsson og Þór Saari.

Hér er um að ræða eitthvert brýnasta úrlausnarefni okkar Íslendinga í efnahags- og atvinnumálum sem er að draga hingað að landinu og þeim mörgu kostum sem það hefur upp á að bjóða þá erlendu fjárfestingu sem okkur skortir svo sárlega og hefur svo sárlega skort í gegnum efnahagssögu okkar. Stærstur hluti erlendrar fjárfestingar hefur sumpart verið í dollarahagkerfinu á Íslandi, þ.e. í stóriðju sem fyrst og fremst er rekin á forsendum annars gjaldmiðils en okkar eigin en í allt of litlum mæli hefur tekist að laða hingað til landsins fjárfestingu í ýmsum vaxtargreinum og í litlum og meðalstórum fyrirtækjum.

Markmið tillögunnar er að ýta undir markvissa starfsemi til að gera bragarbót á þessu og draga hingað að í ríkari mæli erlenda fjárfestingu, fyrst og fremst með markaðs- og kynningarstarfi annars vegar og hins vegar með ívilnunum fyrir erlenda fjárfestingu til að laða hana hingað að sérstökum skattalegum ráðstöfunum eða öðrum þeim ívilnunum sem geta verið til þess fallnar að stuðla að aukinni erlendri fjárfestingu hér. Í tillögunni er lögð rík áhersla á að slíkar ívilnanir og slíkt markaðsstarf fari auðvitað saman við þá atvinnustefnu sem hér er rekin á hverjum tíma og þá styrkleika sem við búum yfir í atvinnulífinu.

Það eru auðvitað fjölmargar ástæður fyrir því að okkur hefur illa gengið að laða hingað erlent áhættufjármagn til fjárfestinga í íslensku atvinnulífi. Sannarlega varð okkur ekki skotaskuld úr því, Íslendingum, að fara um víða veröld og sækja hingað erlent lánsfé sem við nýttum síðan til fjárfestinga en það kunni sannarlega ekki góðri lukku að stýra og á að vera okkur öllum umhugsunarefni hvers vegna okkur takist að draga hingað lánsfé en því miður í allt of litlum mæli erlenda fjárfestingu í íslensku atvinnulífi. Þar má meðal annars nefna að í kringum ýmsar slíkar fjárfestingar hafa verið settar girðingar og sömuleiðis hafa þar risið oft og einatt miklar deilur og það stendur auðvitað upp á löggjafann, fyrir utan samþykkt þessarar tillögu og það að efla markaðs- og kynningarstarf og almennar ívilnanir, að taka betur á einkanlega þeim deiluefnum sem hér hafa verið uppi í samfélagi okkar og varða auðlindir lands og sjávar. Ekki er hægt að neita því að þær miklu deilur sem fylgt hafa atvinnustarfsemi og fjárfestingum í auðlindatengdum greinum í sjávarútvegi með þeim hindrunum sem við höfum sett á erlenda fjárfestingu þar fyrir vikið, í orkuiðnaðinum eins og við þekkjum til að mynda úr Magma-málinu og í tengslum við landakaup nú nýverið í tengslum við ferðaþjónustu norður í landi, þær eru auðvitað ekki til þess fallnar að auka erlenda fjárfestingu eða gefa þau skilaboð að hér sé hún velkomin eða jafnvel eftirsótt. Það er hins vegar ekki að ástæðulausu að þær deilur hafa sprottið. Þær spretta af þeirri tiltölulega útbreiddu skoðun almennings að eignarhald almennings og Íslendinga á auðlindum landsins, hvort sem það er land, orkuauðlindir eða fiskurinn í sjónum, sé ekki nægilega tryggt í þeirri lagaumgjörð sem Alþingi hefur búið því til að það geti komið í veg fyrir að tortryggni og ótti skapist við það að með fjárfestingum í sumum af helstu atvinnugreinum landsins og þeim greinum sem er mikilvægt fyrir okkur að vaxi og fái fjárfestingu séu erlendir aðilar að seilast í auðlindir landsins og við séum að missa á þeim yfirráð og eignarhald um alla framtíð. Það er auðvitað löngu orðið nauðsynlegt að Alþingi taki á sig rögg í þessum efnum og skapi þá almennu og víðtæku sátt um lagaramma í auðlindamálum okkar sem tryggir almenningi að forræði yfir auðlindunum og eignarhaldi yfir þeim sé og verði í eigu íslensks almennings og forræði hans og hann njóti af því arðs. Með slíkum lagaramma greiðum við enn frekar fyrir erlendri fjárfestingu í helstu og öflugustu atvinnugreinum landsins.

Nú um stundir eru það fyrst og fremst gjaldeyrishöftin sem standa okkur fyrir þrifum í þessum efnum og minnir okkur enn einn ganginn á það í sölum þingsins hversu gríðarlega brýnt er að létta höftunum svo fljótt sem verða má. Það þarf svo sem enginn að segja sér það tvisvar að ef maður er að íhuga fjárfestingu í öðru landi, í erlendu ríki þá er það náttúrlega ekki til þess fallið að laða mann að slíkri fjárfestingu ef í því ríki eru hömlur og takmarkanir á því hvað erlendir menn megi taka með sér af gjaldeyri úr landi eins og tilfellið er hér. Það er náttúrlega til þess fallið að hræða marga frá. Þess vegna er meginverkefni okkar til að ná aftur sjálfstæði í þessum málum, að brjóta niður þessi höft og ná aftur á ný frjálsum viðskiptum með okkar eigin gjaldmiðil sem við svo mörg höfum lengi verið sannfærð um að hafi ekki síst verið hindrun fyrir því að draga hingað að erlenda fjárfestingu því að erfitt hafi verið að fá menn til að hætta verðmætum í eigu sinni í litlum gjaldmiðli sem sætir miklum sveiflum og er tiltölulega lítt kynntur á alþjóðamörkuðum.

Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar og nefndin öll leggur til að tillaga þessi verði samþykkt í þinginu. Þrír þingmenn eru á nefndarálitinu með fyrirvara. Það eru hv. þingmenn Lilja Mósesdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Tryggvi Þór Herbertsson en sá sem hér stendur og hv. þingmenn Skúli Helgason, Magnús M. Norðdahl, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson erum án fyrirvara á málinu.