140. löggjafarþing — 118. fundur,  11. júní 2012.

stefna um beina erlenda fjárfestingu.

385. mál
[12:08]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er ánægjulegt að heyra að með því að fella þetta út sé ekki ætlunin að rýra rétt erlendra ríkisborgara hér á landi. Það er ágætt að tekinn sé af allur vafi með það.

Mig langar að spyrja hv. þingmann um annað hér, síðustu málsgreinina í tillögunni þar sem segir að efnahags- og viðskiptaráðherra og iðnaðarráðherra leggi fyrir vorþing 2012 tímasetta áætlun um aðgerðir til að bæta samkeppnisstöðu Íslands og efla markaðs- og kynningarstarf í því skyni. Þá á að móta tillögur um samhæfða stjórnsýslu til að styðja við framangreind markmið. Ég bið hv. þingmann að leiðrétta mig ef mig misminnir en mig rekur ekki minni til að hafa séð þessa áætlun. Nú getum við varla kallað okkur vorþing 2012 lengur, ætli við séum ekki orðin sumarþing 2012? Því spyr ég hv. þingmann hvort ekki væri rétt að gera breytingar á þessari tillögugrein í meðförum Alþingis. Það er tómt mál að tala um að ráðherrarnir leggi fram tillögur um áætlanir á vorþingi 2012 þegar því er lokið eða við það að ljúka. Ég óska eftir að fá svör við þeim spurningum.

Aðeins varðandi fyrra atriðið, að það séu engin dæmi um að eignarréttur sé ekki virtur hér og að enginn þurfi að velkjast í vafa um það, verð ég að rifja upp með þingmanninum að ákveðnar þjóðnýtingarhugmyndir í fyrrnefndu Magma-máli komust nú ansi langt í því að vekja að minnsta kosti upp þennan vafa sem hv. þingmaður (Forseti hringir.) sagði að væru ekki dæmi um hér á landi.