140. löggjafarþing — 118. fundur,  11. júní 2012.

stefna um beina erlenda fjárfestingu.

385. mál
[12:32]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um stefnu um beina erlenda fjárfestingu. Eins og kom fram í máli síðasta ræðumanns er ákaflega erfitt a.m.k. fyrir þá sem hér stendur að vera á móti slíku plaggi. Við höfum staðið hér og kallað eftir aukinni fjárfestingu, bæði erlendri og innlendri. Til að vera jákvæð í upphafi fagna ég því að komin sé fram þessi stefna um beina erlenda fjárfestingu.

Ég verð þó að segja að falleg orð á blaði eru ekki endilega nóg til að hér fari allt í gang. Í athugasemdunum með tillögunni er reyndar rakin mjög vel sú saga sem ég vil leyfa mér að kalla brostinna loforða, sem ríkisstjórnin hefur sett fram, öll yfirlýstu markmiðin, hvort sem þau heita stöðugleikasáttmáli, sóknaráætlun 20/20, yfirlýsing tengd kjarasamningum, skýrslur og úttektir, allt þetta — hversu oft er ekki búið að lofa öllum þessum störfum en eins og við vitum hefur átakanlega lítið orðið um efndir.

Þess vegna verð ég að viðurkenna að jafnvel þótt ég greiði atkvæði með tillögunni eða muni gera það þegar hún kemur til atkvæða, að ég bind ekki miklar væntingar við að ríkisstjórnin framfylgi þessu. Það hefur þegar komið fram. Ég spurði hv. þingmann og framsögumann nefndarálitsins, formann efnahags- og viðskiptanefndar, Helga Hjörvar, áðan og hann staðfesti það, að ekki er búið að leggja fyrir þingið eins og segir í tillögutextanum „tímasetta áætlun um aðgerðir til að bæta samkeppnisstöðu Íslands“. Mér finnst hálfkjánalegt að samþykkja eitthvað sem þegar er fallið á tíma. Ég beini því sjónarmiði mínu til þingmannsins hvort væri nú ekki réttara að breyta þessari dagsetningu vegna þess að við sjáum að þetta gengur ekki upp. Og þótt vorþingið standi fram á haust, eins og mér heyrðist hv. þingmaður vera jafnvel að vonast til, finnst mér þetta vera eitthvað sem við ættum í sameiningu að koma fram með breytingartillögu um undir þessari umræðu og klára það og koma með á haustþingi 2012 vegna þess að þessi frestur er runninn út.

En það er líka gaman að lesa þetta allt saman. Hér eru þessi fallegu markmið að Alþingi felur stjórnvöldum að sækja sérstaklega eftir fjárfestingu sem stuðlar að fjölbreytni atvinnulífs, styður við verndun og nýtingu umhverfis á sjálfbærum grunni og nýtir nýjustu tækni, skapar hlutfallslega mörg störf og hátt hlutfall verðmætra starfa og þar fram eftir götunum. Í nefndarálitinu er það tiltekið sérstaklega úr skýrslu starfshóps iðnaðarráðherra, sem fylgir með sem fylgiskjal, að styrkleikarnir birtist, með leyfi forseta, „m.a. í endurnýjanlegri orku og hreinni náttúru, sem og vel menntuðu vinnuafli. Aðstæður hér á landi opna því tækifæri til fjárfestingar í ýmsum umhverfisvænum og orkuháðum tækniiðnaði og eru sem dæmi nefnd í athugasemdunum hugbúnaðariðnaður, gagnaver, skapandi greinar, þjónustuiðnaður, heilsutengd ferðaþjónusta og líftækniiðnaður.“

Það er í besta falli hjákátlegt að sjá það hjá ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna sérstaklega að fara eigi að nýta orkuna vegna þess að við vitum hvernig umræðan er. Það má ekki nýta þá orku neins staðar virðist vera af hálfu annars stjórnarflokksins, og er ég þá ekki að vísa sérstaklega til flokks hv. þm. Helga Hjörvars en hann ber ábyrgð á þeirri stefnu sem þar er mörkuð. Við vitum hver staðan er á rammaáætluninni. Við vitum hvað er að gerast í neðri hluta Þjórsá. Og við heyrum núna miklar athugasemdir við heimanágrenni mitt, Reykjanesið. Ég vona svo sannarlega að því verði nú ekki breytt í rammaáætluninni.

Við ræddum áðan um þá breytingartillögu sem nefndin leggur fram. Það kom skýrt fram hjá hv. þm. Helga Hjörvar að ekki væri ætlunin að rýra rétt erlendra ríkisborgara með þessari breytingu. Það er samt athyglisvert þegar maður skoðar greinargerðina og athugasemdirnar að þetta ákvæði hefur greinilega verið sett mjög meðvitað inn í tillöguna. Þar er rakið og er kannski í andstöðu við þau orð hv. þm. Helga Hjörvars áðan að enginn vafi sé á því að erlendir aðilar njóti sömu réttinda, en það segir á bls. 6, með leyfi forseta:

„Um leið og Alþingi samþykkir stefnumótandi þingsályktunartillögu um eflingu beinna erlendra fjárfestinga er óhjákvæmilegt að taka sérstaklega á þessum áhættuþáttum“ — ég ætla aðeins að skjóta inn í, áhættuþáttum sem varða erlenda aðila, verið er að tala um pólitískar og matskenndar ákvarðanir. Vík ég aftur að tilvitnuninni — „og kveða m.a. skýrt að orði um vernd erlendra fjárfestinga til jafns við innlenda fjárfestingu auk þess að hefja vinnu við að bæta samkeppnishæfni Íslands með því að endurskoða lagaramma beinna erlendra fjárfestinga.“

Þarna er skýringin á því af hverju þetta ákvæði var inni. Það er greinilegt að iðnaðarráðherra sem leggur þessa stefnumótun fram hefur haft áhyggjur af þessu og ég leyfi mér að segja réttmætar, vegna þess að hún byggir væntanlega tillögu sína meðal annars á skýrslu starfshóps um stefnu stjórnvalda varðandi erlenda fjárfestingu. Þetta er starfshópur sem var skipaður af iðnaðarráðherra 13. október 2010 og skilaði af sér skýrslu, ég veit ekki nákvæmlega hvenær það var, en hún er alla vega hér í fylgiskjali. Þar er verið að ræða sérstaklega um nokkur nýleg dæmi sem hafa orðið til þess að letja frekar en hvetja til erlendrar fjárfestingar hér á landi. Þar er meðal annars það mál sem ég nefndi áðan í andsvari við þingmanninn, þ.e. afstaða stjórnvalda til eignarhalds Magma á HS Orku.

Ég vil leyfa mér að lesa þetta úr skýrslu starfshópsins. Þetta er á bls. 28 í greinargerð með tillögunni. Þar segir, með leyfi forseta:

„Skýrar og strangar reglur um eignarhald á auðlindum og umgengni við þær þurfa ekki að hafa neikvæð áhrif á erlenda fjárfestingu. Hins vegar ýtir umræða um eignaupptöku og aðrar sértækar aðgerðir sem hafa meiri háttar áhrif á rekstrarumhverfi einstakra fyrirtækja undir neikvætt áhættumat. Án þess að afstaða sé tekin til efnisatriða þessa einstaka máls þá bendir starfshópurinn á, að öll umræða um inngrip í einkaréttarlega samninga og eignarnám á einstaka fyrirtækjum hefur mikil og neikvæð áhrif á áhættumat erlendra fjárfesta. Ummæli ráðherra í þá veru að til greina komi að taka HS Orku eignarnámi eru ákaflega skaðleg fyrir beina erlenda fjárfestingu, svo ekki sé sterkar kveðið að orði.“

Það er þetta sem ég var að ræða um áðan. Ég verð eiginlega að hrósa hæstv. iðnaðarráðherra fyrir að birta þessa skýrslu hérna með. Hún er mjög opinská um þá stöðu sem erlendar fjárfestingar á Íslandi eru í og um það pólitíska óþægindaálag sem nú er komið á fjárfestingar á Íslandi af hálfu erlendra lánastofnana og tryggingafyrirtækja. Það er sagt beint út að viðmælendur þessa starfshóps hafi skynjað að landsáhætta sé mjög mikil á Íslandi vegna óstöðugs efnahagslífs og pólitískra óvissuþátta. Það hefur ekki verið svo um alla tíð. Ég minnist þess að mitt fyrsta verkefni að loknu háskólanámi í Bandaríkjunum var að skrifa skýrslu fyrir Fjárfestingarstofu Íslands, Invest in Iceland Agency, sem það hét þá. Þá var í rauninni verið að breyta löggjöfinni í kjölfarið á inngöngu okkar í EES. Viðhorfið var þannig og kom meðal annars fram í þeim bæklingum að allt væri leyfilegt nema það sem væri sérstaklega bannað. Ég skrifaði nokkra bæklinga á þeim árum. Eitt af því sem var flaggað og gerði Ísland að vænlegum fjárfestingarkosti var einmitt pólitískur stöðugleiki, að hér væri hægt að ganga að því vísu að reglur væru virtar, að stöðugleiki væri hér í stjórnmálum og að menn færu ekki í handahófskenndar ákvarðanir og gripu inn í samninga.

Nú er þetta orðið mikið áhyggjuefni og er orðið mikið til trafala í erlendri fjárfestingu og í allri fjárfestingu í rauninni. Hún þarf ekki að vera erlend til að menn hafi áhyggjur og dregur náttúrlega úr allri fjárfestingu. Mér finnst þetta vera orðið mjög alvarlegt. Ef þessi þingsályktunartillaga getur orðið til þess að draga úr þeirri áhættu er ég mjög hlynnt henni en hef þann fyrirvara á að ekki er nóg að vera með falleg orð á blaði, heldur er það að sjálfsögðu sú stefna sem ríkisstjórnin fer eftir og sú hegðun sem hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar sýna. Það er ekki nóg að vera með stefnuna klára, heldur þurfa menn að vinna eftir henni. Ég er ekki viss um að þegar hæstv. forsætisráðherra hótaði þessum inngripum í Magma-málinu hafi það verið á grundvelli stefnu ríkisstjórnarinnar, svo að það sé sagt.

Virðulegur forseti. Ég legg til að dagsetningunni á þessari tímasettu áætlun verði breytt til að gera hana raunsæja og að þingsályktunartillagan verði ekki úrelt um leið og hún verður samþykkt. Ég ítreka að það er erfitt að vera á móti þessu plaggi. Þetta eru falleg markmið sem ég styð heils hugar og nú er það okkar hér og hæstv. ríkisstjórnar að framfylgja þeirri stefnu sem hér er boðuð.

Hv. þm. Helgi Hjörvar sagði að ýmis álitaefni væru uppi um framkvæmd í nýlegu máli, sem við þekkjum, varðandi landakaup erlendra aðila. Ég minnist þess að það eru a.m.k. tvær þingsályktunartillögur, önnur frá hv. þm. Ólöfu Nordal og fleirum og hin frá hv. þm. Guðfríði Lilju Grétarsdóttur og fleirum, sem fjalla um og leggja til að gerð verði úttekt, heildstæð úttekt, á lagaumhverfinu og ef um er að ræða einhver atriði þar sem ber að laga, skýra og styrkja, þá verði það gert. Ég sakna þess að í þingsályktunartillögunni sem þetta mál snertir óbeint er ekkert tekið á þeim álitamálum sem hv. þingmaður nefndi réttilega áðan.

Það eru líka önnur atriði. Hér hafa gjaldeyrishöftin verið nefnd. Ég ætla ekki að endurtaka það. En það eru önnur heimatilbúin atriði sem hægt er að laga og lagfæra og á ekki að þurfa svona þingsályktunartillögu til, en samþykkt hennar hlýtur að verða til þess að menn setjist yfir þessi mál. Þá vil ég nefna önnur þau atriði sem eru lögð fram sem dæmi úr skýrslu starfshópsins, ég vísa aftur á bls. 28. Þar eru til dæmis virðisaukaskattsmál sem við höfum dæmi um í sambandi við netþjóna í gagnaverum og ýmislegt í tengslum við umhverfismat og skipulagsmál sem geta verið til trafala. Þetta eru hlutir sem við þurfum að laga sjálf.

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa um fleiri orð þetta. Til að draga það saman ítreka ég einu sinni enn að það er erfitt að vera á móti þessu plaggi en ég vildi óska þess að ég gæti samþykkt það í þeirri trú að það mundi breyta einhverju í tilvist núverandi ríkisstjórnar. Það finnst mér hins vegar fullbjartsýnt af mér, en við getum alltaf horft bjartsýn fram á veginn. Ég mun a.m.k. ekki standa í vegi fyrir samþykkt þessarar tillögu.