140. löggjafarþing — 118. fundur,  11. júní 2012.

húsnæðismál.

734. mál
[17:27]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Lúðvík Geirsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri Blöndal fyrir fyrirspurnir hans. Það er náttúrlega rétt að ítreka að þær breytingartillögur sem hér eru fram komnar eru fyrst og fremst til þess að bregðast við þeim athugasemdum sem komu fram frá Eftirlitsstofnun EFTA varðandi stöðu Íbúðalánasjóðs og samkeppnisstöðu hans gagnvart öðrum fjármálafyrirtækjum sem lána á íbúðamarkaði.

Þau atriði sem þingmaðurinn nefndi varðandi fjármögnun og uppgreiðslumáta hjá Íbúðalánasjóði voru ekki til sérstakrar umræðu í nefndinni og ég minnist þess ekki heldur að það hafi verið rætt sérstaklega um lánveitingar sem eru áhvílandi á undan þessum lánum. Við vorum fyrst og fremst að skoða þau atriði sem lúta að því að jafna stöðuna á lánamarkaðnum, setja hámark á útlánsheimildir miðað við fasteignamat og þennan sértæka þátt sem lýtur að leigufélögunum. Þar kom hv. þm. Pétur Blöndal reyndar að því atriði að menn hafi möguleika á því að geta selt sjálfseignarstofnunum leigufélög sín en breytingin sem hér er lögð til er í raun og veru sú að það geti engir aðrir en þeir aðilar sem sannarlega eru „non-profit“ félög í leigurekstri haft aðgang að þessum lánum hér eftir.

Það er auðvitað breyting frá því sem var áður þegar sjálfstæðir verktakar eða fyrirtæki gátu sótt sérstaklega um þessi lán á sérkjörum til þess að fara út í byggingu leiguíbúða. Það var gert í stórum mæli á árunum fyrir hrun, en við vitum líka að stærsti hlutinn af þessum íbúðum fór því miður í beina sölu á markaði.