viðurkenning á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi.
Um þetta var mikil samstaða í nefndinni. Hér er lagt til í 2. mgr. 9. gr. laga um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til að starfa hér á landi að kveðið sé á um að ráðherra setji í reglugerð nánari fyrirmæli um innleiðingu og framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi og viðauka við hana.
Við framkvæmd laganna hefur komið í ljós að reglugerðarheimildin nýtist aðeins mennta- og menningarmálaráðherra en ekki ráðherrum annarra málaflokka, svo sem hvað varðar heilbrigðisstéttir og iðngreinar. Talið er eðlilegra að sá ráðherra sem í hlut á, samkvæmt lögum og reglum um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, gefi út þær reglugerðir sem heyra undir hans málefnasvið en þurfi ekki að leita til hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra um það.
Um þetta var eindregin samstaða í nefndinni og hjá þeim sem við fengum til fundar við nefndina. Í umsögn frá Alþýðusambandi Íslands var tekið mjög eindregið undir þetta sjónarmið. Það er mjög til hagsbóta fyrir starf einstakra greina að reglugerðarheimildin sé í viðkomandi ráðuneyti og leggjum við til að þetta mál verði samþykkt óbreytt.