140. löggjafarþing — 118. fundur, 11. júní 2012.
húsnæðismál.
734. mál
Virðulegi forseti. Ég vil árétta það sem fram kom hjá hv. þm. Ragnheiði Ríkharðsdóttur að við teljum eðlilegt að málið fari aftur til nefndarinnar og munum því vera á gulu í þessari atkvæðagreiðslu, þ.e. að greiða ekki atkvæði.