140. löggjafarþing — 118. fundur,  11. júní 2012.

aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi.

717. mál
[19:04]
Horfa

Siv Friðleifsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er mjög ánægjulegt að við skulum núna samþykkja að fella ekki niður það átaksverkefni sem átti að standa í um ár, um að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi, heldur samþykkja sérstaka fjárveitingu í þetta verkefni. Við framsóknarmenn teljum mjög mikilvægt að öryggi borgaranna sé tryggt eins og kostur er.

Það er annað mál svipaðs eðlis sem bætir öryggi borgaranna og hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson hefur flutt. Það er þingsályktunartillaga sem allsherjar- og menntamálanefnd hefur líka samþykkt samhljóða frá nefndinni og vonandi verður það mál samþykkt hér fyrir þinglok. Það gengur út á það að unnin verði löggæsluáætlun fyrir allt landið. Við framsóknarmenn styðjum því þessa tillögu með mikilli ánægju og segjum já og teljum að peningum verði mjög vel varið í þetta verkefni.