fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.
Frú forseti. Ég byrjaði einmitt ræðu mína á að segja að þetta hefði glatt hjarta mitt og hlýjað mér um hjartarætur þannig að það er ekki hægt að segja að ég sé alfarið á móti þessu. Þetta eru samfélagsleg verkefni sem menn ætla að fara í og öll eflaust mjög brýn. Ég man ekki til þess nokkurn tíma á mínum þingferli eða áður að það hafi verið til nógir peningar til að gera allt, það hef ég aldrei upplifað, hvorki fyrir né eftir hrun.
Varðandi heimsendaspá mína er hún dálítið í takt við umsagnir nánast allra sveitarfélaga og flestra þeirra sem sendu inn umsagnir um veiðileyfagjaldið. Heimsendaspá mín er því ekkert mikið verri en þeirra. Svo er eitthvað að gerast í Evrópusambandinu sem erlendir fjölmiðlar líta mjög alvarlegum augum en hérna virðast menn vilja horfa fram hjá því, það sé ekkert að gerast þar, og við munum selja hágæðafiskinn sem lúxusvöru á sama háa verðinu hér eftir sem hingað til.