staða evrunnar og áhrif evruvandans á þróun Evrópusamstarfsins.
Virðulegi forseti. Vanda evrusvæðisins má rekja til rangrar efnahagsstefnu, stefnu sem hefur verið keyrð í gegn af Þjóðverjum sem eru ekki tilbúnir að taka á rót vandans heldur aðeins afleiðingum hans. Vörur og fjármagn ríku evrulandanna hafa frá upptöku evrunnar streymt inn í fátækari evrulöndin og búið til eignabólur eins og til dæmis á Spáni. Eignabólur springa vegna þess að fjármagn er notað til þess að hækka eignaverð en ekki til þess að keyra upp hagvöxt og þar með tryggja að til séu peningar til að greiða af lánum og vexti.
Þjóðverjar hafa neytt fátækar þjóðir Evrópu til að auka skuldsetningu ríkissjóða og skera niður ríkisútgjöld til að fjármagna töpuð lán banka. Þannig eru töpuð útlán bankakerfisins í fátækum evrulöndum gerð að skuld skattgreiðanda. Þegar enginn vill lána skuldsettum evruþjóðum og fjármagnsflótti er hafinn kemur Evrópski seðlabankinn til aðstoðar og lánar, ekki þjóðríkjum af því að Evrópski seðlabankinn má ekki lána þjóðríkjum, heldur bönkum í þjóðríkjum með ábyrgð frá ríkissjóðum um að þeir muni sjá til þess að lánin verði greidd, með öðrum orðum með ríkisábyrgð.
Evran hefur gert fjármagnsfólki kleift að flytja allar eigur sínar frá fátækari evrulöndum og skilja skuldirnar eftir. Brotthvarf skuldsettra þjóða úr evrusamstarfinu mun því verða mjög sársaukafullt fyrir almenning að öllu óbreyttu.
Frú forseti. Ósjálfbærar skuldir hafa ekki síður eyðileggjandi áhrif á samfélög og líf einstaklinga en stríð. Ósjálfbærar skuldir á að (Forseti hringir.) afskrifa í nafni mannúðar.