140. löggjafarþing — 119. fundur,  12. júní 2012.

fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.

392. mál
[16:31]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður fór rækilega yfir þingsályktunartillöguna og vék sérstaklega að málum sem sneru að Norðvesturkjördæmi. Ég ætla í sjálfu sér ekki að bæta neinu við það sem hv. þingmaður sagði í ræðu sinni um það.

Ég ætla aðeins að fá að víkja að öðru atriði sem hv. þingmaður nefndi sem hefur kannski minna verið rætt í tengslum við vegagerð í landinu og það er hið versnandi ástand sem er núna á vegum landsins. Þar er ég að vísa til þess að undanfarin ár höfum við vegna fjárþröngar okkar verið að skerða mjög mikið framlög til viðhalds á vegum og nú er svo komið að við sem ökum þessa vegi mikið erum farin að taka eftir því að þeir eru farnir að láta mjög mikið á sjá. Við þekkjum það vissulega í gegnum tíðina varðandi malarvegina sem hafa oft nánast hrokkið ofan í holur í rigningarveðrum og þeir láta fljótlega undan síga eins og við þekkjum. Menn hafa verið að reyna að bregðast við með því að fara í stórar framkvæmdir og auðvitað hefur það skilað árangri.

Hins vegar á móti er það líka að við erum búin að byggja upp þjóðvegakerfi sem annar greinilega ekki þeirri vaxandi umferð sem fer um vegina og ekki síst vaxandi þungaumferð. Þetta sjáum við mjög vel á þjóðvegi 1 eins og hv. þingmaður nefndi.

Í Fréttablaðinu 8. júní sl. sagði Hreinn Haraldsson vegamálastjóri að viðhaldið á vegunum væri núna orðið minna en lágmarkskröfur kvæðu á um og þetta þýddi að sjálft burðarlag veganna væri farið að skemmast. Þá verða vegirnir hættulegir og eins og vegamálastjóri segir, með leyfi forseta:

„Við getum ekki búið í mörg ár við fjárveitingarnar eins og þær eru núna.“

Hann segir síðan að það væri „dýrara að byggja vegina upp aftur en það væri að tryggja eðlilegt viðhald“.

Ég tek eftir því að í breytingartillögum meiri hlutans er vikið að þessu í nefndaráliti, þessu vandamáli, en hins vegar ekki gerðar tillögur um neinar breytingar. Það eru ekki tillögur til hækkunar. Og ef við skoðum annars vegar árin 2012 og 2013 eru þar mjög sambærilegar tölur og gert var ráð fyrir í tillögunni og ef við skoðum síðan 2014 og 2015 er það sama talan.

Nú vil ég spyrja hv. þingmann álits á þessu, hvort hann telji að nægilega vel sé fyrir þessu séð til að tryggja það að við missum ekki (Forseti hringir.) þessa vegi, sem þó hafa verið byggðir upp, niður í það vonda ástand sem virðist blasa við okkur.