fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég ætla ekki að fara út í að ræða við hann einstakar samgönguframkvæmdir heldur svona stóra ramma, stóru umgjörðina sem búin er til í kringum samgönguáætlunina. Þegar við erum að ræða hana er ekki hægt að komast hjá því að fara aðeins yfir þær tekjur sem ríkissjóður hefur af umferðinni í landinu.
Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2012 er gert ráð fyrir að tekjur af ökutækjum nemi 54 milljörðum kr. Þar af er ráðgert að tekjur ríkissjóðs af eldsneyti, skatti á eldsneyti, nemi 21 milljarði. Ég hef bent á að skatttekjur ríkissjóðs vegna vörugjalds af eldsneyti hafa hækkað um 163% frá árinu 2008. Þessar upplýsingar koma fram í umsögnum um samgönguáætlun. En eins og samgönguáætlun kom upphaflega fram er gert ráð fyrir að 15,7 milljörðum sé varið til vegagerðar og skyldra mála.
Það er alveg rétt að margir hafa sagt að ekki sé eðlilegt að eyrnamerkja allar tekjur sem koma af umferðinni og ökutækjum beint inn til vegagerðar. Mig langar að velta því upp við hv. þingmann hvað hann telji eðlilegt, í ljósi alls, í ljósi þess hvernig vegakerfið er að eldast, með tilliti til viðhalds, nýframkvæmda og fleiri þátta, að verja miklu til vegagerðar sem hlutfalli af tekjum sem koma inn af umferðinni. Eins og þetta er núna erum við að tala einungis um 30%. Er það ekki of lágt miðað við þær tekjur sem við erum að fá af umferðinni? Mig langar að fá hv. þingmann til (Forseti hringir.) að velta því aðeins upp.