fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Fyrst um mörkuðu tekjurnar, það liggur fyrir að markaðar tekjur í fjárlögum eru um það bil 95 milljarðar kr. sem við getum sagt að sé útgjaldapakki sem nemi hátt í 1/5 af heildarútgjöldum ríkisins. Það er mjög erfitt að halda utan um þetta eða koma böndum á það. Því hefur fjárlaganefnd rætt hvernig unnt sé að gera það sem best. Við höfum átt ágætissamstarf við fjármálaráðuneytið um það hvort við getum einhvern veginn komið frekari böndum á þennan útgjaldapóst. Að því erum við að vinna í ágætri sátt og sameiningu.
Varðandi þá spurningu sérstaklega sem hv. þingmaður beindi til mín og laut að kolefnisskatti er það viðfangsefni efnahags- og viðskiptanefndar að fjalla um þá þætti. Fjárlaganefndin er fyrst og fremst í gjaldahlutanum. Heildarniðurstöður eru allir þættir sem lúta að skattlagningu, þróun skattstofna og því um líku og það er ekki á málefnasviði fjárlaganefndar. Við sýslum ekki með það dagsdaglega, heldur er það á verkefnalista og meðal viðfangsefna efnahags- og viðskiptanefndar. Aðkoma fjárlaganefndar að tekjuhlutanum er fólgin í því að við förum að sjálfsögðu yfir tekjur og gjöld, tekjuhlutann sérstaklega, og óskum síðan eftir áliti og vinnu efnahags- og viðskiptanefndar varðandi þann þáttinn. Hún greinir, vinnur með og gefur síðan umsagnir. Þar liggur þessi skilnaður á milli þessara tveggja nefnda.
Varðandi veggjöldin, svo ég svari því í mjög stuttu máli, met ég það svo að það sé yfirgnæfandi meiri hluti í fjárlaganefnd fyrir því að skoða möguleika á fjármögnun verkefna í gegnum (Forseti hringir.) veggjöld.