140. löggjafarþing — 119. fundur,  12. júní 2012.

fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.

392. mál
[21:08]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Fyrst um það að samgöngur séu félagslegt fyrirbæri. Ég minni á að heimilislæknirinn hefur löngum verið í einkabisness og ekki á vegum ríkisins. Ég held að flestir séu á því að heilbrigðisþjónusta og lækningar séu samt félagslegt atriði. Það sem gerist við svona breytingu er að menn vita nákvæmlega hversu miklar tekjur eru af ákveðnum vegarstubbi. Það skiptir í sjálfu sér ekki stóru máli hvort Vegagerðin leggur stubbinn eða eitthvert fyrirtæki, bara sá sem getur lagt það ódýrast og getur hagnast af þeim gjöldum sem koma af þeim vegarstubbi. Þetta kerfi býður upp á miklu meiri möguleika.

Varðandi það hversu stór hluti af gjöldunum fer til ríkisins og ekki til vegagerðar kemur hv. þingmaður að mjög athyglisverðri spurningu. Hverjir eiga að vera skattstofnar ríkisins? Hvaða umsvif eiga að gefa ríkissjóði tekjur? Flestir eru sammála um að til séu tekjur einstaklinga, tekjur fyrirtækja líka, fjármagnstekjur o.s.frv. Eiga samgöngur að vera tekjustofn? Ef það er rétt sem hv. þingmaður sagði, að þetta sé félagslegt fyrirbæri, finnst mér það mjög rangt. Mér fyndist mjög rangt ef heilbrigðisþjónustan ætti að gefa ríkissjóði tekjur í staðinn fyrir að kosta eins og er í dag.

Þetta er mjög athyglisverð spurning. Hún kemur einmitt upp þegar menn fara að taka upp veggjöld. Ég er nærri viss um að þegar fjöldi bíla verður kominn á vegina sem notar rafmagn og borgar þá í rauninni ekkert fyrir vegina, eftir á að giska þrjú til fimm ár, verði menn að endurskoða allt þetta kerfi, taka upp notkunargjöld og velta fyrir sér hvort umferðin eigi að vera tekjustofn.