fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.
Hæstv. forseti. Það vakti athygli okkar allra hér í vetur þegar hv. þingmaður spurði nokkuð ítrekað, og hefur kannski gert undanfarin ár, um vegamál í Árneshreppi á Ströndum. Hv. þingmaður fór yfir það að einhverju leyti í ræðu sinni. Mér skilst að hann hafi lagt fram breytingartillögu sem meðal annars felur í sér vegabætur í þeim ágæta hreppi.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort í tillögu meiri hlutans sé algjörlega horft fram hjá ástandi vegamála þar. Úr minni byggðunum heyrast færri raddir og þær njóta oft ekki nægilegrar athygli hér í þinginu. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi einhverja tilfinningu fyrir því hvort tillögur meiri hlutans séu nægjanlegar til þess að laga ástandið þarna og uppfylla þær kröfur sem hv. þingmaður hefur margoft vakið athygli á í þingsal. (Forseti hringir.) Eða er algjörlega nauðsynlegt að breytingar hv. þingmanns komi til?