140. löggjafarþing — 119. fundur,  12. júní 2012.

fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.

392. mál
[22:42]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ólína Þorvarðardóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður rak hornin í þau áform sem uppi eru vegna Vestfjarðavegar 60 og þá sérstaklega gerði hann að umtalsefni kaflann um Gufudalssveit. Ég get ekki orða bundist og geri athugasemd við þennan málflutning hjá þingmanninum í ljósi þess að sú samgönguáætlun sem hér liggur fyrir gerir ráð fyrir 3,2 milljörðum kr. á öðru tímabili í Gufudalssveit sérstaklega og 3,2 milljörðum kr. í kaflann Eiði/Kjálkafjörður núna á yfirstandandi tímabili 2011–2014.

Ég hélt að þingmanninum væri betur ljóst en mörgum öðrum á hverju strandar og hefur strandað í Gufudalssveitinni. Fjármunir hafa ekki nýst þar, m.a. vegna málaferla og vandræða sem uppi hafa verið undanfarin ár vegna leiðarvals og ágreinings um leiðarval. Þó að við settum helmingi hærri upphæð í þann kafla kæmust þeir fjármunir ekki í neitt brúk á meðan ekki hefur náðst niðurstaða um leiðarval. Þar strandar ekki á vilja stjórnvalda. Þar strandar á öðru, m.a. dómstólum, þeim hæstaréttardómi sem fallið hefur.

Ég vildi leyfa mér í fullri kurteisi að gera þessa athugasemd við málflutning þingmannsins.