140. löggjafarþing — 120. fundur,  13. júní 2012.

húsnæðismál.

734. mál
[11:49]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa framsögu og jafnframt fyrir samstarfið í nefndinni. Ég er ekki á þessu nefndaráliti og tel að við séum ekki búin að fara nægilega vel yfir það hvort þessar lagabreytingar sem hér er lagt upp með svari þeim athugasemdum sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur gert um starfsemi Íbúðalánasjóðs. Ég tel að fyrst við erum farin að endurskoða starfsemi sjóðsins og breyta lögum þá eigum við að gera það heildstætt og reyna að skoða málið ofan í kjölinn og gera breytingar sem munu skila okkur fram á veginn. Við eigum ekki að reyna að bregðast bara við á einhvern hátt að mínu mati þar sem við höfum ekki skoðað þetta nægilega vel. Hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir kallaði eftir því við 2. umr. málsins að við færum yfir þetta mál í nefndinni með sérfræðingi í Evrópurétti. Það var ekki fallist á það af hálfu meiri hluta nefndarinnar og mér finnst það einfaldlega ekki nægilega góð vinnubrögð.

Það kom jafnframt fram varðandi þann markaðsbrest sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur fallist á að sé til staðar á Íslandi að hann væri hugsanlega aðeins til skamms tíma. Ég tel að við þurfum að skoða þetta frekar, einnig vegna þess að á fund nefndarinnar komu aðilar frá öðrum fjármálafyrirtækjum sem héldu því fram að það væri einfaldlega ekki um markaðsbrest að ræða heldur væri Íbúðalánasjóður í bullandi samkeppni við bankana um lán til fasteignakaupa. Ég tel að þessar athugasemdir sem og þetta mál allt saman veki fjölmargar spurningar og það frumvarp sem hér er lagt upp með að fari í gegn svari þeim ekki á fullnægjandi hátt. Ég tel því að við ættum að skoða málið betur, gefa okkur meiri tíma og reyna að vinna þetta í nefndinni á næsta þingi.