húsnæðismál.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti minni hluta velferðarnefndar varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál, með síðari breytingum.
Eins og hv. þm. Lúðvík Geirsson fór í gegnum byggist stór hluti þessa frumvarps á þeim athugasemdum sem hafa komið frá Eftirlitsstofnun EFTA við starfsemi Íbúðalánasjóðs en niðurstaða rannsóknar stofnunarinnar var að sjóðurinn nyti ýmiss konar ríkisaðstoðar og því væri nauðsynlegt að setja starfsemi hans ákveðnar skorður.
Í frumvarpinu er einnig verið að bregðast við því sem hefur gerst eftir hrun þar sem Íbúðalánasjóður hefur þurft að taka yfir ýmsar eignir á nauðungarsölu vegna ástandsins í efnahagslífinu og erfiðrar stöðu heimila landsins. Fyrir liggja fjölmargar ályktanir um þá afstöðu framsóknarmanna að Íbúðalánasjóður gegni lykilhlutverki á íslenskum húsnæðismarkaði. Þess vegna legg ég mjög mikla áherslu á að alls ekki megi kasta til hendinni við mótun þess lagaumhverfis sem sjóðurinn starfar við.
Ég verð þó að viðurkenna að við vinnslu þessa frumvarps hafa vaknað ákveðnar efasemdir um að með frumvarpinu sé komið á fullnægjandi hátt til móts við þær kröfur sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur sett fram. Ég skildi framsögumann meirihlutaálitsins sem svo að hann tæki í raun undir það. Það má vænta þess að Eftirlitsstofnunin muni áfram fylgjast mjög vel með starfsemi Íbúðalánasjóðs þannig að hugsanlega þurfum við að bregðast við því seinna.
Ég vil hins vegar í framhaldi af þessu benda á að nú stendur yfir rannsókn á starfsemi Íbúðalánasjóðs og við settum þau skilyrði að farið yrði allt aftur til stofnunar sjóðsins til að fá ákveðna heildarmynd af því hvernig starfsemi hans hefur verið háttað og lagaumhverfi hans. Í niðurstöðu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, hinnar einu sönnu, voru mjög hörð orð látin falla varðandi þá ákvörðun sem þáverandi stjórnvöld tóku um húsnæðismál og íbúðalán og Íbúðalánasjóð. Í þeirri umræðu benti ég á það sem að mínu mati voru ein stærstu mistök sem þáverandi stjórnvöld gerðu; að setja ekki almenna löggjöf fyrir alla lánveitendur sem starfa á húsnæðislánamarkaði, alla sem veita lán til húsnæðiskaupa. Í stað þess, þó að lánahlutfallið væri hækkað, var sett þak á það hversu há upphæðin gæti verið hjá Íbúðalánasjóði. Þannig takmörkuðu menn starfsemi Íbúðalánasjóðs en gerðu ekki sömu kröfu til annarra á markaðnum. En það hefur sýnt sig, ekki hér á Íslandi heldur í hinum vestræna heimi í þeirri miklu bankakrísu sem heimurinn er að fást við, miklu skuldakrísu, að skuldastaða heimila getur verið gífurleg ógn við fjármálalegan stöðugleika í hverju landi fyrir sig.
Nýjasta dæmið um þetta er þeir fjárhagsörðugleikar sem spænska ríkið er að lenda í, ekki vegna þess að spænska ríkið hafi ekki haldið vel á fjármálum sínum — og það er hægt að setja samasemmerki á milli þess og íslenska ríkisins sem skilaði umtalsverðum afgangi fyrir hrun — heldur hafa skuldir heimila og fyrirtækja vaxið gífurlega. Í frétt sem ég skoðaði í morgun var talað um að skuldir heimilanna væru fleiri hundruð prósent í samanburði við landsframleiðslu. Þetta er raunveruleg ógn við fjármálalegan og efnahagslegan stöðugleika.
Við höfum heyrt fréttir þess efnis að bankarnir séu að sækja aftur inn á húsnæðislánamarkaðinn en á sama tíma hefur ekki verið sett heildstæð löggjöf um fasteignalán. Við höfum þó tekið það skref, sem ég tel mjög jákvætt, fyrir þó nokkru síðan þegar við settum lán til íbúðakaupa undir almenn lög um neytendalán en ég held að það séu til ýmis önnur úrræði til dæmis hvað varðar greiðsluerfiðleika, hámark varðandi lánshlutfall, reglur varðandi lengd lánstíma og hvernig standa skuli að greiðslumati sem er hvorki að finna í því frumvarpi um neytendalán sem er núna í efnahags- og viðskiptanefnd né í þeim lögum sem eru þegar í gildi. Ég ræddi þetta einmitt sérstaklega við hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra og benti á nauðsyn þess að setja svona löggjöf og vísaði til dönsku laganna sem ég hef skoðað ítarlega og gætu verið ákveðin fyrirmynd fyrir okkur hvað þetta varðar. Ég vonast svo sannarlega til að við í hv. velferðarnefnd sjáum efnahags- og viðskiptaráðherra koma með þess háttar löggjöf inn, þó að það mál komi kannski ekki endilega inn í okkar nefnd heldur fari væntanlega frekar til efnahags- og viðskiptanefndar, og sú löggjöf verði unnin í nánu samráði við velferðarráðuneytið til að tryggja að við getum búið sem best að heimilum landsins. Húsnæðiskaup eru stærsta einstaka fjárfestingin sem hvert og eitt heimili ræðst í og sú sem mest áhætta fylgir. Hér á Íslandi hefur það verið þannig að íslensk heimili hafa verið mjög skuldsett, m.a. vegna þess að mjög stórt hlutfall af íslenskum fjölskyldum býr í eigin húsnæði og það hefur verið meginhúsnæðisstefna á Íslandi.
Ég sat í samráðshópi um nýja húsnæðisstefnu ásamt hv. þm. Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur sem stýrði þeirri vinnu, og hv. þm. Lúðvík Geirsson hefur síðan í framhaldinu unnið meðal annars að mótun tillagna um samræmdar húsnæðisbætur í staðinn fyrir vaxta- og leigubætur. Hin lykiltillagan hjá samráðshópnum var um nauðsyn þess að fjölga búsetukostum á Íslandi þannig að við værum ekki fyrst og fremst að beina fólki að því að kaupa sér húsnæði heldur hefði það aðra möguleika, hefði val um að geta leigt til lengri tíma eða keypt sér búseturétt. Óháð því hvaða kost menn velja eiga þeir að geta búið fjölskyldu sinni öruggt heimili. Hluti af þessu er það sem menn eru að reyna hér, að ég tel, að koma í veg fyrir að mjög mikið af eignum fari inn á markaðinn með því að leyfa Íbúðalánasjóði að eiga leigufélag með íbúðarhúsnæði sem hann hefur yfirtekið á nauðungarsölu.
Það sem ég hef lagt mjög mikla áherslu á, í ljósi þess að Íbúðalánasjóður er sá sem fyrst og fremst fjármagnar leigufélögin, er að tryggja að þetta leigufélag verði algerlega aðskilið frá þeirri starfsemi sjóðsins sem lýtur að lánveitingum vegna þess að til þess að fá lán hjá Íbúðalánasjóði er eðlilegt að leggja fram allar nauðsynlegar upplýsingar um rekstur viðkomandi félags. Það þýðir náttúrlega að ef Íbúðalánasjóður og starfsmenn hans væru samhliða að reka leigufélag í beinni samkeppni við aðra viðskiptavini sína væri mjög mikil hætta á hagsmunaárekstrum þar sem sjóðurinn væri í beinni samkeppni við leigu- og húsnæðissamvinnufélög á markaði. Þess vegna fagna ég því virkilega sem kom fram hjá hv. þm. Lúðvíki Geirssyni um að hann tæki undir þá breytingartillögu sem ég legg til og mæli fyrir. Hún er svohljóðandi:
„Efnismálsliður c-liðar 4. gr. orðist svo: Að eiga leigufélag með íbúðarhúsnæði sem Íbúðalánasjóður hefur yfirtekið á nauðungarsölu, samanber lög um nauðungarsölu, samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð sem ráðherra setur þar sem meðal annars skal kveðið á um sjálfstæði stjórnar leigufélags gagnvart stjórn Íbúðalánasjóðs og um rekstrarlegan og bókhaldslegan aðskilnað.“
Þarna horfði ég meðal annars til ákvæða í raforkulögunum sem eiga einmitt að tryggja þennan aðskilnað. Ég horfði líka til reynslunnar af þeim skilyrðum sem Fjármálaeftirlitið setti þrotabúunum þegar það tók við samningum við ríkið um rekstur og eignarhaldið á nýju bönkunum og síðan leit ég til reynslu Seðlabanka Íslands af því að hafa yfirtekið aftur eignir sem urðu til við hin svokölluðu ástarbréfaviðskipti í aðdraganda hrunsins. Ég tók einnig tillit til þeirra athugasemda sem fulltrúi Framsóknarflokksins í stjórn Seðlabankans gerði við stofnun þeirra eignaumýslufélaga og reynslunnar af því og dæma sem hafa komið upp um mikilvægi þess að tryggja aðskilnað þar á milli, dæma sem við þekkjum ágætlega.
Þetta er það sem ég hafði fram að færa. Ég fagna því virkilega því að framsögumaður meiri hlutans hafi tekið undir þessa breytingu og hef ekki frekari athugasemdir við málið.