140. löggjafarþing — 120. fundur,  13. júní 2012.

lengd þingfundar.

[15:50]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Frú forseti. Ég get ekki annað en tekið undir með mörgum þeim sem hafa tjáð sig um lengd þingfundar á undan mér og spyr einfaldlega: Til hvers? Hvað ætla menn að græða á því að ræða endalaust um sömu málin aftur og aftur? Þessu þingi lýkur ekki með því að halda fleiri kvöldfundi, helgarfundi eða sumarþing. Því mun ekki ljúka þannig. Því mun einfaldlega ljúka með einhvers konar samkomulagi eða með ákvörðun hæstv. forseta um að skilgreina nákvæmlega ræðutímann í málum eins og heimild er til. Hluti þingsins hefur hertekið ræðustól Alþingis og komið í veg fyrir að mál fái lýðræðislegan endi í þinginu. Það er ekki hægt að búa við slíkt fyrirkomulag í lýðræðissamfélagi. Það er að mörgu leyti upp á ríkisstjórnina að klaga enda kom hún seint fram með málin en engu að síður verður að höggva á þennan hnút með öðrum hætti en þeim að boða áframhaldandi kvöldfundi og sumarþing. Það er bara leikaraskapur og álit almennings utan veggja hússins á þinginu er algerlega horfið.