peningamálastefna Seðlabankans.
Virðulegi forseti. Það er nú einu sinni svo, eins og hv. þingmaður veit, að Seðlabankinn er sjálfstæð stofnun og hv. þingmaður veit mætavel að þær ákvarðanir sem Seðlabankinn tekur, að því er varðar peningamálastefnuna, að því er varðar vaxtahækkanir, eru ekki bornar undir einstaka ráðherra eða ríkisstjórn. Þetta er sjálfstæð ákvörðun sem Seðlabankinn hefur tekið. (EKG: Skoðun ráðherrans.)
Ég sagði áðan að ég hefði ekki verið ánægð með margar ákvarðanir sem hefðu verið teknar að því er varðar vaxtahækkanir en ég geri ráð fyrir að Seðlabankinn sé ekki að leika sér að því að hækka vextina, hann hefur teflt fram sínum rökum fyrir því að það sé nauðsynlegt upp á aðhaldið (Gripið fram í.) — lofaðu mér að klára, hv. þingmaður — að fara í þessar vaxtahækkanir en eins og ég sagði áðan eru öll merki þess að við séum á réttri leið og að verðbólgan sé að lækka, við séum að sjá mikinn (Gripið fram í.) hagvöxt eins og við erum að sjá hér núna 4,5% hagvöxt á 12 mánaða tímabili og það mun sannarlega hjálpa okkur.