aðgerðir gegn einelti.
Virðulegi forseti. Gerður var svokallaður þjóðarsáttmáli gegn einelti í nóvember sl. Ráðherrar fjármálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis, borgarstjóri Reykjavíkur, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga og fulltrúar félagasamtaka sem starfa í þágu barna undirrituðu samninginn við hátíðlega athöfn í Höfða.
Sú sem hér stendur skrifaði undir þjóðarsáttmálann með mikilli ánægju sem þáverandi formaður Samfoks, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík. Þrátt fyrir töluverða vitundarvakningu um vandann á síðustu missirum er einelti enn fyrir hendi í miklum mæli í skólum landsins og enn eru allt of mörg dæmi um slík mál sem eru leyst með því að láta þolandann skipta um umhverfi. Ákveðið var að foreldrar og stjórnendur grunnskóla gætu vísað eineltismálum til fagráðs ef ekki tækist að leysa þau innan skóla og sveitarfélags þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og aðkomu sérfræðiþjónustu. Samkvæmt verklagsreglum mennta- og menningarmálaráðuneytis átti að stofna fagráðið í mars sl. Mjög brýnt er að úrbætur fáist í úrvinnslu þessara mála sem þola enga bið vegna þess mikla tjóns sem aðilar eineltismála verða fyrir. Stundum er um líf eða dauða að tefla eða annan skaða sem aldrei verður bættur.
Vil ég því spyrja hæstv. velferðarráðherra, í fjarveru hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra, hvort fagráðið hafi tekið til starfa og hvort hann geti veitt þinginu upplýsingar um hversu mörg mál fagráðið hefur tekið til umfjöllunar og afgreiðslu og einnig hversu mörgum málum hefur verið lokið. Hefur þetta úrræði verið kynnt fyrir foreldrum grunnskólabarna og þá með hvaða hætti?