húsnæðismál.
Frú forseti. Við höldum áfram með umræðuna í gær um frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál. Eins og fram kemur í nefndarálitum bæði meiri og minni hluta má rekja tilurð frumvarpsins til rannsóknar Eftirlitsstofnunar EFTA á starfsemi Íbúðalánasjóðs. Niðurstaða þeirrar rannsóknar var að sjóðurinn nyti ríkisaðstoðar í formi eigendaábyrgðar, vaxtaniðurgreiðslna, undanþágu frá arðsemiskröfu og greiðslu tekjuskatts. Auk þess að bregðast við þessu er einnig lagt til í frumvarpinu að Íbúðalánasjóður fái heimild til að eiga og reka leigufélag með eignir sem sjóðurinn hefur eignast á nauðungarsölu.
Ég held að í umræðu um þetta mál sé ekki úr vegi að ræða aðeins um stöðu Íbúðalánasjóðs, mikilvægi hans og framtíðarsýn fyrir hann.
Eins og kemur fram í minnihlutaáliti Eyglóar Harðardóttur, þingkonu Framsóknarflokksins, er það afstaða minni hlutans að Íbúðalánasjóður gegni lykilhlutverki á íslenskum húsnæðismarkaði. Ég fór yfir þá sögu í gær í andsvörum við þingmenn að á árunum 2006–2008 þegar fjármagn flæddi út úr öllum fjármálastofnunum og mjög auðvelt var að ná sér í fjármagn til húsnæðiskaupa, til bygginga á nýju húsnæði o.s.frv., var á mörgum strjálbýlli svæðum oft á tíðum því miður ekki hægt að leita nema til Íbúðalánasjóðs. Hann gegndi þar algjöru lykilhlutverki.
Í gegnum tíðina og ekki hvað síst um miðjan síðasta áratug hefur verið verulegur þrýstingur á að einkavæða Íbúðalánasjóð. Ég held að við höfum öll séð að hann gegnir afar þýðingarmiklu hlutverki. Sú félagslega og samfélagslega hugsun sem Íbúðalánasjóður byggir á er gríðarlega mikilvæg. Þess vegna held ég að það sé mikilvægt að horfa til framtíðar og styrkja Íbúðalánasjóð á þeim grunni sem hann starfar. Það er engin ástæða og ekki efni til þess að tala um einkavæðingu á honum á nokkrum tímapunkti. Þess vegna er ég mjög ánægður með að í nefndaráliti minni hlutans er lagt gríðarlega rík áhersla á að Íbúðalánasjóður gegni lykilhlutverki á íslenskum húsnæðismarkaði.
Við getum rifjað upp að það voru mikil átök á milli Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins á sínum tíma um Íbúðalánasjóð. Eins og kom fram hjá hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur í gær hafa ákveðin öfl innan Sjálfstæðisflokksins talað fyrir því að einkavæða Íbúðalánasjóð. — Þar kemur einn þeirra, hv. þm. Tryggvi Þór Herbertsson. En það ánægjulega og kannski ljósið í myrkrinu var að hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði í gær að þetta væri að öllum líkindum minnihlutahópur innan Sjálfstæðisflokksins. Þannig að hv. þm. Tryggvi Þór Herbertsson tilheyrir þá þeim minnihlutahópi innan Sjálfstæðisflokksins. Það er gríðarlega mikilvægt að Íbúðalánasjóður gegni áfram lykilhlutverki sínu.
Í nefndaráliti minni hlutans, hv. þm. Eyglóar Harðardóttur, kemur einnig fram að minni hlutinn leggur á það mikla áherslu að leigufélag það sem lagt er til að Íbúðalánasjóði verði veitt heimild til að reka og eiga verði algerlega aðskilið frá þeirri starfsemi sjóðsins sem lýtur að lánveitingum. Minni hlutinn telur að mikil hætta sé á hagsmunaárekstrum þar sem Íbúðalánasjóður verður í beinni samkeppni við leigu- og húsnæðissamvinnufélög á markaði sem fá lán hjá sjóðnum. Til að tryggja þennan aðskilnað hefur hv. þingmaður lagt fram breytingartillögu og leggur til að frumvarpið verði samþykkt nái sú breytingartillaga fram að ganga. Ég er mjög ánægður með þetta minnihlutaálit og þann blæ sem er á því og þær lykiláherslur sem þar eru lagðar.
Með þessu frumvarpi er verið að gera breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál, og því veltir maður því óneitanlega fyrir sér af hverju ríkisstjórnin nýtir ekki þetta tækifæri til að koma betur til móts við skuldsett heimili í landinu. Ég hef kynnt mér breytingartillögu við frumvarpið sem flutt er af hv. þm. Einari K. Guðfinnssyni sem gerir mögulegt, samhliða þessu máli, að ráðast í frekari aðgerðir til handa skuldsettum heimilum landsins. Í þeirri breytingartillögu segir, með leyfi frú forseta:
„Heimilt er að færa niður veðkröfur skv. 1. mgr. um allt að 15 millj. kr. hjá einstaklingum og um allt að 30 millj. kr. hjá hjónum, sambýlisfólki og einstæðum foreldrum enda sé veðkrafan á veðrétti umfram 110% af verðmæti eignar. Nemi niðurfærslan hærri fjárhæð en 10 millj. kr. hjá einstaklingi og 20 millj. kr. hjá hjónum, sambýlisfólki eða einstæðum foreldrum skal lækka niðurfærslu veðkröfu sem nemur veðrými á aðfararhæfri eign í eigu lántaka eða maka hans, að hluta eða heild, að því marki sem veðrýmið er umfram 1 millj. kr. að viðbættum tvöföldum útborguðum mánaðartekjum viðkomandi einstaklings.“
Síðan segir í greinargerð með tillögunni:
„Markmið breytingartillögunnar er að tryggja að Íbúðalánasjóður geti boðið lántökum upp á sambærileg úrræði og Landsbankinn hf. hefur boðið viðskiptavinum sínum undir heitinu Skuldalækkun Landsbankans.“
Ég benti á það undir liðnum um störf þingsins í gær að nú væri hæstv. forsætisráðherra að boða til sumarþings og velti því upp hvort það sumarþing ætti að koma saman til þess að ræða skuldavanda heimilanna og aðgerðir til handa þeim einstaklingum sem glíma við mikla skuldabyrði. Nei, sú er ekki raunin. Svo sjáum við þetta mál hér, breyting á lögum um húsnæðismál. Þá skyldi maður ætla að það væri mjög nærtækt, í ljósi ástandsins og umræðunnar í samfélaginu og í ljósi þeirrar áherslu sem ríkisstjórnin hefur í orði lagt á að leysa skuldavanda heimilanna, að koma breytingartillögu eins og þessari inn í frumvarpið, breytingartillögu sem gerir einfaldlega ráð fyrir því að Íbúðalánasjóður geti boðið upp á sambærilega lausn og ríkisbankinn, Landsbankinn. Maður veltir því óneitanlega fyrir sér af hverju þingflokkur Samfylkingarinnar leggur ekki áherslu á það.
Það er ágætt í tengslum við þetta að rifja upp ummæli hv. þingmanns Árna Páls Árnasonar, sem þá var hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra, um Íbúðalánasjóð á síðasta ári. Í viðtali sagði hv. þingmaður, með leyfi forseta:
„Það eru lítil rök fyrir því að reka Íbúðalánasjóð ef hann getur ekki mætt fólki í vanda með sama hætti og fyrirtæki á markaði.“
Svo segir fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra:
„Engin áform eru samt uppi um að sjóðurinn veiti sömu úrræði vegna fasteignalána og Landsbankinn þótt báðir séu í eigu ríkisins.“
Að lokum segir hæstv. fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra áfram, með leyfi frú forseta:
„Það er auðvitað bara gott að fjármálastofnanir gangi fram og nýti það svigrúm sem þær telja sig hafa til þess að mæta fólki í skuldavanda. Það er síðan sjálfstætt úrlausnarefni hvernig tekið verður á málefnum Íbúðalánasjóðs. Hann verður auðvitað að geta starfað með sama hætti. Það eru lítil rök fyrir að hafa ríkisrekinn íbúðalánasjóð ef hann getur ekki staðið undir því að mæta fólki í vanda með sambærilegum hætti og fyrirtæki á markaði.“
Þarna er hæstv. fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra óbeint að segja að það sé eðlilegt að Íbúðalánasjóður veiti sömu úrræði og Landsbankinn veitir.
Síðan vil ég vitna í orð hv. þm. Helga Hjörvars þegar hann svaraði fyrirspurn í þinginu frá hv. þm. Einari K. Guðfinnssyni sem spurði hann einmitt út í þá staðreynd að Íbúðalánasjóður býður ekki sömu úrræði og Landsbankinn. Þetta er 19. nóvember á síðasta ári og hv. þm. Helgi Hjörvar segir, með leyfi frú forseta:
„Það er einfaldlega afstaða mín að ríkisbankar, hvort sem þeir heita Landsbankinn eða Íbúðalánasjóður, eigi að bjóða viðskiptavinum sínum sambærileg kjör. Höfuðröksemdin fyrir því að við höfum sett á stofn Íbúðalánasjóð er sú að fólk eigi að geta treyst því að þangað sé að sækja bestu fáanlegu kjör í húsnæðislánum. Það stríðir beinlínis gegn því ef neytendur njóta betri fyrirgreiðslu hjá viðskiptabönkunum sem eru í eigu ríkisins en hjá Íbúðalánasjóði.“
Það er varla hægt að vera mikið skýrari í orðum en hv. þm. Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar þingsins, er í þessu máli.
Því veltir maður því óneitanlega fyrir sér þegar ríkisstjórnin kemur fram með mál um breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál, til þess að mæta kröfum sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur sett fram, af hverju menn bregðast ekki við, úr því að verið er að fjalla um þessi lög. Ég vitnaði til ummæla tveggja þingmanna úr þingflokki Samfylkingarinnar þar sem þeir leggja beinlínis til að Íbúðalánasjóður veiti sömu úrræði og ríkisbankinn Landsbankinn. Af hverju leggja þessir hv. þingmenn ekki fram tillögu um það?
Ef maður skoðar nefndarálit meiri hluta velferðarnefndar rita undir það í það minnsta fjórir hv. þingmenn Samfylkingar, þau Jónína Rós Guðmundsdóttir, Lúðvík Geirsson, Kristján L. Möller og Björgvin G. Sigurðsson. Mér finnst mjög miður að þetta mál sé lagt fram án þess að samhliða því sé gripið inn í og gerðar breytingar að þessu leyti. Þess vegna styð ég þá breytingartillögu sem hefur verið lögð fram til að tryggja að Íbúðalánasjóður geti boðið lántökum upp á sambærileg úrræði og Landsbankinn hefur boðið viðskiptavinum sínum undir heitinu Skuldalækkun Landsbankans.
Ég styð líka breytingartillögu hv. þm. Eyglóar Harðardóttur sem ég gerði grein fyrir áðan sem mun gera þetta mál betra. Við verðum að horfast í augu við, eins og segir í minnihlutaáliti hv. þm. Eyglóar Harðardóttur, að Íbúðalánasjóður gegnir lykilhlutverki á íslenskum húsnæðismarkaði. Það er gríðarlega mikilvægt að við horfum til framtíðar hvað hann snertir. Ég hygg að þær tvær breytingartillögur sem lagðar eru fram við þetta frumvarp frá hv. þm. Eygló Harðardóttur og hv. þm. Einari K. Guðfinnssyni séu báðar til þess fallnar að styrkja og efla Íbúðalánasjóð til framtíðar og ná því markmiði sem sett er fram í minnihlutaáliti hv. þm. Eyglóar Harðardóttur um að Íbúðalánasjóður gegni áfram lykilhlutverki á íslenskum húsnæðismarkaði.
Margir hverjir eru að verða dálítið langþreyttir á því að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skuldamálum, málefnum skuldsettra heimila og verðtryggingarinnar og fleira virðast fremur vera í orði en á borði. Ég held að með þessum tveimur breytingartillögum hafi þingið og hv. þingmenn Helgi Hjörvar og Árni Páll Árnason tækifæri til að sýna fram á að viljinn til þess að koma til móts við skuldsett heimili sé ekki bara í orði, hann sé einnig á borði.
Ég vonast svo sannarlega til að þessar breytingartillögur nái fram að ganga og vil að lokum endurtaka það, því góð vísa er aldrei of oft kveðin, að Íbúðalánasjóður gegnir lykilhlutverki á íslenskum húsnæðismarkaði. Hann á áfram að vera í samfélagslegri eigu og vera rekinn á sömu forsendum og áður. Við þingheimur eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að styrkja hann og efla til framtíðar.