húsnæðismál.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innlegg hans og deili því með honum að Íbúðalánasjóður eigi að gegna lykilhlutverki í íslensku samfélagi. Hann hefur það hlutverk að byggja á félagslegum grunni og tryggja lán til íbúðarhúsnæðis um allt land. Þess vegna veldur það mér alveg ótrúlega miklum vonbrigðum að Framsóknarflokkurinn sem hefur ávallt verið talsmaður Íbúðalánasjóðs (Gripið fram í.) skuli velja þetta mál í málþóf (BJJ: Málþóf?) til að tefja fyrir á meðan samningar standa varðandi framhald (Gripið fram í: Málþóf?) þingsins.
Hér er um að ræða gamalt mál sem er kæra til ESA frá bönkunum fyrir hrun. Sú kæra hefur lifað. Í millitíðinni höfum við farið í gegnum það að á árunum fyrir hrun, á fjórum árum, stækkaði lánastabbinn vegna íbúðarhúsnæðis úr 700 milljörðum sem voru hjá Íbúðalánasjóði yfir í 1.400 milljarða, bara vegna bankanna. Bankarnir hrynja síðan og við fáum þetta allt saman í fangið meira og minna. Allir hafa séð mikilvægi Íbúðalánasjóðs þó að hann hafi tapað líka. Hann situr uppi með fullt af leiguhúsnæði þar sem við erum að reyna að koma yfir í leigufélög. Hvers vegna? Jú, vegna þess að nánast öll leigufélögin sem voru á markaðnum fyrir hrun eru á hausnum og geta ekki sinnt hlutverk sínu.
Þess vegna kemur mér mjög á óvart að menn skuli koma hingað á sama tíma og við erum að reyna að svara ESA með fullnægjandi hætti í samráði við þá, að vísu tímabundið, og búast má við að kröfur komi aftur, en ef við komum ekki með þetta núna fáum við kæruna strax.
Ég ætla bara að vona að menn hafi vit á því að klára þetta mál. Ekki ætla Sjálfstæðisflokkurinn eða Framsóknarflokkurinn að fara hér inn með sama formið og var árið 2003 án þess að vita nokkurn skapaðan hlut hvernig bankarnir verða fjármagnaðir næstu tvö, þrjú, fjögur árin? Ég er mjög hissa á hvernig menn leggja þetta fram.
Ég tek undir þá tillögu varðandi leigufélögin sem kom fram frá hv. þm. Eygló Harðardóttur og komin er yfirlýsing frá meiri hluta velferðarnefndar um að styðja þá tillögu. Aftur á móti get ég ekki séð með nokkrum hætti hvernig á að fara að blanda hér inn vandamálum varðandi greiðslur og skuldavanda heimilanna akkúrat inn í þetta frumvarp hvernig við bregðumst við hjá ESA. Þá umræðu þarf ég auðvitað að taka annars staðar.
En ég ætla (Forseti hringir.) þó að segja að það er makalaust að vera með tillögur um 40 milljarða útgjöld á meðan menn telja að útgerðin geti ekki borgað 2–3 milljarða á ári í viðbót. Menn ætla ekkert að (Forseti hringir.) fjármagna þetta (Gripið fram í.) heldur leggja það á skattgreiðendur með beinum hætti. Ég vil þá fá tillögu (Forseti hringir.) Sjálfstæðisflokksins um það. (Gripið fram í.)