húsnæðismál.
Hæstv. forseti. Það væri ágætt ef hv. þingmaður segði mér í seinna svari afstöðu sína gagnvart þeim málflutningi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft í málinu hingað til. (Gripið fram í.) Já, það er ágætt að fá það fram, vegna þess að Íbúðalánasjóður er hér undir og það er hann sem við erum að ræða um og skiptir mestu máli. Ég er aftur á móti tilbúinn að taka skuldavandaumræðuna alla í gegn, sérstaklega af því að við vorum að fá seðlabankaskýrsluna þar sem segir að fyrst og fremst sé verið að glíma við greiðsluvanda en ekki skuldavanda, þar sem við erum með háa greiðslubyrði, 30% er ekki í eigin húsnæði og borga háa leigu. Það er akkúrat það sem við erum að reyna að taka á. Við erum að reyna að fara markvisst í það að finna lausnir sem passa við þann hóp sem er í vandræðum.
Þegar þetta kom fram í umræðunni komu menn og sögðu: 110%-leiðin er gagnslaus. Hún er bara út um gluggann, kostar allt of mikið, sagði Framsóknarflokkurinn. En þeir vilja fara í almennar leiðréttingar sem sami banki sagði um: Það eru bara peningar út um gluggann og fara ekki til þeirra sem eru í greiðsluvanda. Þá umræðu þurfum við auðvitað að taka. Ég er alveg sammála því. Það á þá að vera sérstök og sjálfstæð umræða eins og raunar er búið að taka um þetta mál. (Forseti hringir.) En það stendur ekkert í tillögunum um hvernig á að fjármagna þetta. Og að nefna Icesave-peningana, þ.e. fyrst við sluppum hugsanlega við að greiða þá, losnuðum við það, þá er það bara að setja peningana út um gluggann. Það eru engin rök í málinu.