140. löggjafarþing — 121. fundur,  14. júní 2012.

húsnæðismál.

734. mál
[12:25]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Stefna Sjálfstæðisflokksins er séreignarstefna, að stuðla að því að fólk eignist sína eigin íbúð, en jafnframt að standa vörð um þá sem leigja. Þar er ekki tekin sérstök afstaða til Íbúðalánasjóðs en samkvæmt skilgreiningu ESA starfar hann á samkeppnismarkaði vegna þess að hann er ekki félagslegur. Íbúðalánasjóður er ekki félagslegur, hann veitir öllum ríkisábyrgð án tillits til efnahags og tekna. Þess vegna er hann ekki félagslegur. Ég mundi annaðhvort vilja gera hann félagslegan eða koma með önnur úrræði eins og stefnu um húsnæðisbótakerfi, að eitt húsnæðisbótakerfi fyrir alla tæki við.

Ég held að þegar hv. þingmaður skoðar þetta og kemur með hugmyndir um almenn lög fyrir alla sem taka lán til fasteignakaupa getum við verið sammála, frú forseti.