húsnæðismál.
Frú forseti. Síðasta atriðið tel ég einmitt ákaflega mikilvægt. Þess vegna undraðist ég að ríkisstjórnin skyldi ekki koma með skýrari stefnu í málefnum Íbúðalánasjóðs í þessu frumvarpi þegar fer að hilla undir lok stjórnmálaferils ríkisstjórnarinnar, skulum við segja, að hún skuli þá ekki koma fyrr fram með skýra stefnu. Það er augljóst að ríkisstjórnin hefur lagt sig í líma við að reyna að koma bankastarfseminni og fjármálastarfseminni á því sviði á laggirnar og stært sig af því víða um völl, sumt jafnvel verðskuldað eins og gengur og gerist.
Þess vegna finnst mér sérkennilegt í meira lagi að ríkisstjórnin skuli ekki hafa sama metnað til að koma fram með skýra stefnu um að Íbúðalánasjóði sé gert kleift að standa undir sambærilegum möguleikum og til að mynda Landsbankanum þannig að hann geti í raun og veru keppt. Eins og hv. þingmaður bendir réttilega á mun fólki ellegar væntanlega ekki finnast það í sömu stöðu eftir því hvort það skiptir við Íbúðalánasjóð eða Landsbankann sem bæði eru fjármálafyrirtæki í ríkiseigu. Þá fjarar væntanlega undan stuðningi við Íbúðalánasjóð sem hefur annars verið víðtækur og almennur. Margir sögðu hér fljótlega eftir hrun: Við getum þakkað guði og kannski Framsóknarflokknum fyrir Íbúðalánasjóð, að hann skuli vera til og að honum skuli ekki hafa verið breytt. Hann stóð af sér hrunið. Það er rétt að hann hefur fengið veruleg fjárframlög, en eru þau ekki bara nokkuð eðlileg í samræmi við stærð og mikilvægi sjóðsins? Ef menn bera þau saman við þau gríðarlegu fjárútlát sem hafa orðið vegna annarra fjármálastofnana, nú síðast SpKef, (Forseti hringir.) fer maður kannski að átta sig á stærðargráðunni sem Íbúðalánasjóður hefði þurft. Ég hefði viljað sjá ríkisstjórnina standa betur og fastar á bak við Íbúðalánasjóð.